Ég er merc fan, og er hálfpartinn að leita mér að Benz 190, helst árgerð 86-92, beinskiptum. Það væri alls ekki verra að hann væri á álfelgum, og draumur ef hann væri með 2300 vélinni! 1800 vélin kæmi varla til greina, þar sem hún eyðileggur mína hugsun á bak við benz bílana (KRAFTUR + þægindi).
Veit einhver hérna um falan benz á góðu verði sem er tilbúinn að ganga í mína þjónustu, helst vel með farinn og ekki eintak sem búið er að tjúna neitt mikið?