Dear Santa,
What I want most in the world is a Digital Watch with an Alarm on it.

Love,
Big Mac


Þessi varð til eftir að McRae mætti of seint til að velja sér á Leg 2 í Ástralska rallinu um daginn.

Ástæðan að baki því að hann er dregin aftur fram í dagsljósið er Burns vs. McRae sálfræðistríðið en Burns lenti nefnilega í smá óhappi í gær. Hann var að hefja prófunarakstur fyrir Subaru í Wales og ákvað að leyfa kærustunni sinni, Zoe, að sitja í framsætinu í fyrstu ferðinni. Burns var búinn að keyra um 1 mílu af prófunarleiðinni þegar hann keyrði beint út af í krappri beygju. Og nú velta McRae aðdáendur því fyrir sig hvað í ósköpunum Zoe hafi gert til þess að fá hann til að missa svona einbeitinguna ;) og ekki vantar tilgáturnar.

Burnsaðdáendur svöruðu með því að draga jólagjafalistann hans McRae aftur fram.

Held að Tjallinn sé alveg að fara yfirum í þessum pælingum og samt heilir 5 dagar í rallið.