'Eg þurfti að fara á hjolbarðaverkstæði í dag. Bæði til að fá mér dekk og láta umfelga.Og valdi ég að prufa nýlegt verkstæði í Dugguvog 10 sem heitir Pitstop.Er búinn að vinna sjálfur á verkstæði í mörg ár og langaði að prufa þessa.Mér var vægast sagt tekið mjög vel og vildu þeir allt fyrir mig gera.Keipti ég dekk hjá þeim og bað þá um að setja þau á felgur fyrir mig.Sem þeir og gerðu. Við að felga dekkin kom smá óhapp fyrir.Og voru þeir mjög leiðir yfir því og spurðu mig hvernig ég vildi fá þetta bætt.Ég sagði þeim hvernig þeir gætu bætt mér tjónið.Og samþykktu þeir það strax og löguðu það sem gerðist í óhappinu án nokkurra málalenginga.Ég er sérstaklega ánægður með hvernig þeir tóku á málinu og löguðu strax.Engar þrætur eða þref bara öllu kippt í lag strax.Þarna eru góðir starfsmenn og kúnninn vel metinn.Á meðan þeir voru að vinna fyrir mig. Kom þarna maður sem vantaði 1 dekk á móti öðru sem hann var með.Sagðist hann vera búinn að leyta út um allan bæ og ekki fundið enn. Verkstjórinn fór og leytaði hjá sér og fann ekki svo hann fór í símann og hætti ekki fyrr en hann fann dekk fyrir manninn. Almennileg þjónusta. Er hæst ánægður með þessa menn.