þessi bíll er mjög trúlega með blöndung og bílar með svoleiðis apparrati eyða alltaf meira en innspýttir bílar. en svo fer eyðsla á BMW slatta eftir vélarstærð. en ég get lofað þér því að þú færð ekki fallegra hljóð en úr svona allvöru chevy 350 mótor, en kaninn er því miður þeim galla gæddur að vera með stóra mótora sem skila ekki eins miklu afli og mætti búast við en hvað þeir geta togað, það er allveg ótrúlegt (sem dæmi notar dráttabílafyrirtækið krókur ameríska bensín bíla og vá hvað það er fallegt hljóð úr þeim).
en eyðsla á svona bílum fer eftir árgerð að því leitinu til að einhverntíman koma þeir með beinum innspýtingum og þessar innspýtingar batna með árunum, en meðan að blöndungarnir voru í þessum bílum eru þeir nokkurnvegin að eyða því sama milli árgerða…
„Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.“