Keppni lauk í dag og voru úrslitin eftir bókinni sem var öruggur sigur feðganna Rúnars Jónssonar og Jóns Ragnarsson á Subaru Impreza.

Keyrðar voru 2 sérleiðir á Sundahafnarsvæðinu í gærkveldi og voru margir áhorfendur mættir þrátt fyrir mígandi rigningu til að byrja með en sem betur fer stytti upp rétt áður en fyrsti bíll var ræstur í brautina. Mjög gott framtak hjá mótshöldurum að setja upp svona áhorfendavæna sérleið í Reykjavík og var þetta stórgóð skemmtun enda leiðin rennandi blaut með tilheyrandi skrensi og snúningum.