það var virkilega undarleg tilfinning sem greip mig á Hringbrautinni í dag þegar á móti mér birtist Enzo Ferrari. Ekki leiðinleg tilbreyting það. Verst að ég sá hann ekki fyrr því þá hefði ég kannski rifið í stýrið á jeppanum og staðið hann yfir umferðareyjuna og dúndrað á kvikindið. Hehehe.
Smá spaug.
En annars grunar mig að bíllinn hafi verið á leiðinni út á hótel loftleiði því þar sá ég ítalska þotu í dag sem hann hefur eflaust átt að fara í.