Sælir Mitsubishi eigendur.

Nennið þið að opna húddið á Mitsubishinum ykkar og athuga hvaða öxlar eru í þeim. Það stendur á límmiða sem er fremst innan á húddlokinu sjálfu.

Ég er að vonast til að þið sjáið KM 210.

Ef þið sjáið þessa tölu þá megið þið endilega segja mér hvaða bíl þið eruð á og hvaða árgerð vegna þess að mig vantar innri liðinn á öxulinn í Colt turbo og hann fæst ekki nema í umboðinu og þá verð ég að kaupa allan öxulinn með tilheyrandi kostnaði.

Ef einhver annar Mitsubishi er með sömu öxla þá er kanski möguleiki að þetta liggi á einhverri partasölunni.

Með fyrirfram þökk,

Fóstri a.k.a. Gísli Viðar<br><br>Ég er ekki ég, ég er annar. -Megas