Maður frá BSA hringdi í mig í dag til að tjá mér að þeir væru að panta inn spindilkúlur í
Jaguar. 4 kúlur, 2x13þ og 2x16þ - samtals 58þ. Takk fyrir það.

Ég var einnig búinn að kanna verð í sérpöntun hjá Bílanaust og þar kostar kúlan um 4þ.
16-20þ. fyrir allar fjórar hingað komnar!


Svo heyrði ég sögu af því þeir hefðu boðið manni að panta fyrir hann vökvastýri í samskonar bíl
gegn því að hann borgaði þeim 150þ. Sem betur fer pantaði sá maður sjálfur og borgaði 150 pund (tæplega 20þ.).


Eru þessir menn gengnir af göflunum? Allt í lagi einhver verðmunur en þegar við erum að tala
um 300%, 400%, 500%, 600% verðmun renna á mann tvær grímur!

Tek það fram að ég veit ekki um gæði eða framleiðendur þessara vara en fyrr má nú rota en steinrota!

Þetta er bara ljótt, svona gera menn ekki ;-)