Smá bögg á IH.

Fyrir ca 2 mánuðum var ég að renna í gegnum heimasíðuna hjá Ingvari Helga og rakst á amk tvennt sem stakk í auga.
Impreza WRX á að vera með “16 tommu loftkælda diska”. Eins og einhver mundi segja “Sem er mjög gott” ;-)

Á öðrum stað kemur fram að “vinnsla í bæjarakstri sé 13,5 lítrar” 8-|

Ég sendi þeim ábendingar um þetta en hef hvorki heyrt frá þeim né hefur síðan verið löguð.

Þetta segir manni hve vakandi sum umboð eru á netinu. Heimasíðan er andlit fyrirtækisins á netinu og oft fyrsta stoppistöð væntanlegs neytanda.