Frændi minn fór með sína rollu til Toyota í söluskoðun um daginn. Þeir settu ýmislegt útá bílinn og m.a. voru þeir ekki hressir með olíuleka.

Þetta leist frænda mínum vel á þar sem að bíllinn var keyptur hjá Toyota fyrir nokkrum mánuðum með 6 mánaða ábyrgð, sem er ekki útrunnin. Þegar hann sagði þeim það þá reyndu þeir að draga í land og vildu taka þetta af skránni.

Þar sem að hann er nú hættur við að skipta um bíl þá ætlar hann að láta Toyota laga þennan olíuleka sem að þeir fundu :)

JHG