Ford Mustang Cobra SVT Sat í þessu tæki um daginn og langaði bara að senda inn aðra mynd af þessum grip, það er reyndar búið að taka þessa límmiða á hliðunum af bílnum, en hann er kominn með svartan topp og svörtu rendurnar eru enn á húddinu.

Eigandi þessa bíls er Hrannar Sigursteinsson. Verð að segja að þessi bíll vinnur svakalega, hef aldrei áður sitið í svona tæki.

Hann er núna um það bil.
530 hestöfl
Hann er að toga um svona 800 N, er ekki viss við nákvæmlega hvaða snúning samt.

Hrannar á svo fullt fullt af gotterí sem mun fara í bílinn á næstunni, t.d. nýjan stærri blásara og svona.

Mynd tekin af http://www.flickr.com/photos/sonusgrale/sets/72157600113668808/
Mr.Boom mótormynd.