Sælir, langaði bara að koma því á framfæri fyrir þá sem vilja spila við útlendinga og eiga möguleika á að spila með íslendingum á erlendum server. Þá hefur badclan gengið frá 3 mánaða samning við Multiplay.co.uk um ranked server í Bretlandi með 24 Slot á Ranked server, Serverinn verður opinn öllum sem vilja spila, bæði Íslendingum sem útlendingum. Servernum verður svo hægt að læsa fyrir scrimm og æfingar með útlendum clönum. Þetta gefur möguleika á að spila með betra ping fyrir Íslendinga við erlend clön í báðar áttir. verið er að setja serverinn upp og ganga frá stillingum, og ætti serverinn að vera kominn í loftið um helgina. Þá verða BaD menn með 2 Servera í gangi, Einn á Íslandi og einn í Bretlandi…

Kveðja Scropion.