Nú er liðin síðasta helgi fyrir fjórða Skjálfta ársins.
Skjálfti, leikjamót internetdeildar Símans mun verða haldinn 12.-14. nóvember í HK húsinu, Digranesi.

Battlefield hluti Skjálfta fer sífellt vaxandi og voru rúmlega 100 manns skráðir til keppni á tímabili.
Þó munu ‘aðeins’ um 90 manns mæta á þennan Skjálfta úr eftirfarandi liðum:

89th
fubar
sm
I'm
CP
GH
DEM
Fkn

Á síðasta Skjálfta öttu kappi 5 lið með um 60 manns.

Keppnisfyrirkomulag síðasta Skjálfta gekk út á tvöfalda stigakeppni sem gefur auðvitað ekki mikið rúm fyrir spennu.

Með 8 liðum hefur tekist að ráða bót á því vandamáli.

Núverandi fyrirkomulag er á þessa leið:

Spilunarfyrirkomulag:

Á 80 mínútum skulu 2 lið keppa hvort við annað. Sá hluti keppni er kallaður ‘leikur’.
Hverjum leik er skipt upp í tvo leikhluta. Í fyrri leikhluta velur það lið sem hægra megin er á keppnistöflu map.
Í seinni leikhluta skal hitt liðið velja map.

Hverjum leikhluta(mappi) er skipt upp í tvær umferðir sem hvor um sig tekur 20 mínútur,
þar sem liðin skiptast á að vera allis og axis.
Liðið sem er hægra megin á keppnistöflu skal byrja sem allies.

Keppt verður á 4 leikjaþjónum.

Reglur:

Spilað verður eftir clanbase reglum. Ætlast er til þess að liðin virði hvort annað og taki tillit til þarfa annarra, án þess þó að úr hófi sé keyrt.
Lánsmannareglur eru þannig að ef einhver maður hefur spilað battlefield sem keppnisgrein á þessum með einhverju liði, þá má hann ekki taka þátt í battlefield sem keppnisgrein með neinu öðru liði.
Með öðrum orðum, til að forðast rugling, ef láner hefur verið notaður af liði X í battlefield keppninni, þá má lið Y EKKI nota sama mann.


Keppnisfyrirkomulag:

Liðunum 8 hefur af handahófi verið deilt upp í 2 riðla.
Tvö efstu lið úr hvorum riðli, eftir riðlakeppni, halda áfram í tvöfalda útsláttarkeppni.
Athugið að þetta er stór breyting sem gefur rúm fyrir úrslitakeppni.


Stigagjöf:
2 stig fyrir vinning.
Lið vinna leik með heildarfjölda tickets úr báðum leikhlutum.


A-riðill:
Fkn
DEM
GH
CP

B-riðill:
89th
fubar
sm
I'm

—–
Maplist:

1 Battle of Midway
2 Battle of the Bulge
3 Berlin
4 Bocage
5 El Alamein
6 Gazala
7 Guadalcanal
8 Iwo Jima
9 Kharkov
10 Kursk
11 Omaha Beach
12 Operation Aberdeen
13 Operation Battleaxe
14 Operation Market Garden
15 Stalingrad
16 Tobruk
17 Wake Island

Hvert lið getur ekki valið sama kortið tvisvar.
—–
Dagskrá:
Tímaplan er reiknað útfrá leiktíma (80m) + buffertíma(40m)

Föstudagur

Tími - Riðill - Lið1 - Lið2
20:00 - A - Fkn - DEM
20:00 - A - GH - CP
20:00 - B - 89th - fubar
20:00 - B - sm - I'm
=============================
22:00 - A - DEM - GH
22:00 - A - CP - Fkn
22:00 - B - Fubar - sm
22:00 - B - 89th - I'm
=============================
Keppni lokið á föstudegi klukkan ca 00:00
=============================
Laugardagur

12:00 - A - Fkn - GH
12:00 - A - DEM - CP
12:00 - B - I'm - fubar
12:00 - B - 89th - sm
=============================
Tvöföld útsláttarkeppni hefst klukkan 14:00 og mun ljúka á laugardegi klukkan 22:00.
Úrslit eru á sunnudegi klukkan 12:00.
Leikslok munu verða í síðasta lagi klukkan 17:00 á sunnudegi.


Eins og á síðasta móti þá mun www.hugi.is/bf verða notaður sem upplýsingamiðill gegnum mótið
Búinn verður til sérstakur kubbur þar sem hægt verður að sjá stöðu mála hverju sinni.

Endilega að rífast sem mest í mér ef mér hefur tekist að gleyma einhverju.
Og ekki hika við að spyrja ef það er eitthvað í þessu sem þið eruð efins um.

Ef það er ekkert sem amar að þessu upplýsingaflóði mínu þá vonast ég til þess að við sjáumst hress og kát á föstudag :)

izelord, skjálfta BFp1mp.
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur.