VÁ, það hefur orðið gríðarmikil vakning í Discworld málefnunum núna (með öðrum orðum TVEIR korkar tengdir Discworld hafa skilað sér með litlu millibili …erh…) og af því tilefni hef ég ákveðið að búa til “discworld síðu” á íslensku. (Því miður hef ég ekki hugmynd um hvernig á að gera það svo ég fór á næstbesta (eða á eftir því) staðinn eða www.folk.is (sem lýsir best minni gríðar miklu vitneskju um netið *ha,ha*))
Allavega, svona til að sjá hvað margir hérna hafa áhuga á Discworld (og mér datt engin betri hugmynd í hug til að finna það út, allar uppástungur vel þegnar) þá bjó ég (eða er að búa ) til www.folk.is/discworld og hér með bið ég alla þá sem hafa svo mikið sem snefil af áhuga á Discworld annaðhvort að senda mér skilaboð á huga eða fara á www.folk.is/discworld Ef að svo ,,ólíklega“ vill til að ”þessi síða hefur ekki verið gerð virk" kemur upp þá ætla ég aftur að benda á skilaboð á huga.

Allir þeir sem hafa nennt að lesa þetta, takk kærlega fyrir, og ef ekki vinsamlegast sendið mér samt skilaboð eða farið á www.folk.is/discworld og skrifið í gestabókina

Takk fyrir og ég biðst afsökunar á ófullgerðri síðu (hún er í vinnslu og mun verða í ókominn tíma)

*vá hvað ég er desperate! Setti www.folk.is/discworld 5 sinnum inn! Jæja, fólk ætti allavega ekki að vera í vandræðum með að komast þangað…erh…*