Já… Discworld serían….. persónulega finnst mér hún alveg ótrúlega fyndin, ein uppáhalds bókaserían sem ég hef lesið, og ég er nokkuð viss um að það eru þónokkuð margir sammála mér í þessu. Ég hef verið að lesa allt sem ég finn um þessa seríu á netinu og fann nýlega eitthvað sem kallaðist “Wadfest”. Þetta er í Bretlandi, ein helgi á ári skilst mér, þar sem að aðdáendur Discworld koma saman á tjaldsvæði og bara… hafa gaman :) (þetta átti ekki að ríma!!!)
Og núna ætla ég að koma mér að efninu… hvað fyndist ykkur um að halda svona eins og eina “Discworld hátíð” á Íslandi, einhverja helgina?


Meira um wadfest á
http://www.wadmeister.co.uk/wadfest/first.htm