Ég var líka dauðhrædd við að gera eitthvað í mínum strákamálum. Svo bara einn daginn gerðist eitthvað… ég var orðin “fáránlega gömul”, kyssti fyrst strák þegar ég var 18 ára, en mér finnst það frábært því við erum núna búin að vera lengi saman og hann er sá eini sem ég hef verið með :) Ég er mjög ánægð með að hafa ekkert verið að drífa mig upp í rúm með bara einhverjum. Mér finnst það einmitt vera merki um styrk, að þurfa ekki að gera það sem allir eru að gera og það sem samfélagið segir...