Það voru einhverjir tveir aðrir að mig minnir, hvor með einn banner. Það voru nokkuð massaðar umræður um þetta. Og næstum allir voru sammála um að þessi banner væri sá besti þegar þeir sáu hann í „action“ á síðunni. Til dæmis af því maður sæi út frá Hobbitaholu, flestir byrjuðu á Tolkien ofaní Hobbitaholu :p
Þar að auki minnir hún á það sem gerir Tolkien að betri fantasíuhöfundi en aðra, þessi móment eins og vegaljóð Bilbós í lok Hobbitans, það geta allir skrifað inn Dreka sem spúa eldi og brennisteini yfir galvaska prinsa eða orka að ausa sér yfir staðfasta dverga, en hobbitarnir; ferðalagið og heimkoman, er það sem gerir Tolkien sérstakan og hví ekki að hafa það í öndvegi á áhugamáli tileinkuðu honum.