Góðan daginn/morunn/kvöld/nótt/ójá.
Ég var sorphatari en bíðið þið, ég sá ljósið og nú stend ég sem óviðurkenndur sorpari. Satt að segja er ég nýr í hópinn og ég var að velta því fyrir mér, hvað skilgreinir “sorp”. Er þetta bara ,,dump“ huga eða er þetta ,,flipp” place-ið. Ég hef tekið eftir ýmsu sem kítlar fyndnu beinin mín og annað sem gerir mig bara svo furíus að ég vil fá útrás. (Ég vil, takið eftir, þótt maður sé karlmaður eða kvenmaður er vil alltaf með einu l-i í 1.persónu et.)
Allaveganna, ég vona að þið getið hjálpað mér og gefið ykkar skoðun á hvað sorp-ið er.