Golf Tiger Woods tók þátt í Wachovia mótinu um helgina, en það var fyrsta mót hans í þrjár vikur þar sem hann hefur verið við heræfingar. Tiger Woods endaði í 3.sæti á 10 höggum undir pari og aðeins einu höggi á eftir sigurvegaranum sem var Joey Sindeler, en hann vann Arron Oberholser í bráðabana. Þetta verður að teljast ágætt hjá Woods en hringirnir hans voru 69,66,75,68.