Nýlega spilaði ég golf hjá GBB. Fékk gott veður og hringurinn kostaði aðeins 1.000 kall. Völlurinn er ágætur, frekar stuttur. Hefur 6 par 4 brautir og restin er par 3 brautir. Fínn völlur fyrir þá sem eru að byrja. 5 brautin er falleg hola og þarf að slá yfir vötn og inn á flöt en hún er par 3 hola og 131 metri að lengd miðað við skorkortið. Þeir kylfingar sem eiga leið um Bíldudal ættu endielga að kíkja á þennan völl og útsýnið er engu líkt.