Bilar Svona mun fyrsti bíllinn hannaður undir merkjum Bentley eftir yfirtöku Volkswagen/Audi líta út. Útlitið veldur engum vonbrigðum og það gera afköstin ekki heldur. Spretturinn upp í hundrað um eða undir 5 sekúndum fyrir bíl sem er yfir tveimur tonnum er mjög við hæfi í nútíma Bentley en það er spurning hvað Bentley aðdáendum finnst um fjórhjóladrif og hálfsjálfvirkan gírkassa með skiptingarflipum bakvið stýri. 6 lítra W12 með tveimur túrbínum, yfir 500hö og ógnvænlegu togi eins og sést á neðri myndinni prýðir bílinn einnig og veldur væntanlega minni deilum. Verðið yrði væntanlega í átta stafa tölum á Íslandi og reyndar örugglega allsstaðar í heiminum, reiknaði í íslenskum spírum þ.e.

Heimildir og myndir af www.evo.co.uk