Halló

Þegar ég kem heim í dag eftir erfiðan dag þá ætla ég í tölvuna, en neinei hún er þá bara biluð og ég ætla að tékka hvort einhver hérna viti hvað er að henni áður en ég fer að borga eitthvað shit, einnig er hún keypt í helvítis BT.

Allavega þá lýsir þetta sér þannig að ég kveiki á henni, viftan fer í gang, síðan hættir hún og slekkur á sér, ekkert annað gerist, það kemur ekkert á skjáinn einu sinni.

Modelið er Toshiba satellite M60-132

Guð má blessa þann mann sem veit hvað er að
Pearl Masters BRX Midnight Fade 154# 10x9“ 12x10” 14x14“ 14x6,5” 20x16“