Mikið var ég hissa að sjá nokkra korka hér á Huga. Hér eru menn að skammast yfir að þjónustan sé léleg og maður fái ekki nóg. Mér finnst þetta furðulegt, og hefði þvert á móti búist við að menn yrðu ánægðir með að fá ókeypis hýsingu.
Fyrir mína parta vil ég hrósa/þakka þeim sem standa að síðunni fyrir að bjóða upp á þessa þjónustu. Þetta er að sjálfsögðu grunnþjónusta, og ef menn vilja eitthvað meira þurfa þeir að greiða fyrir það. Eðlilega.
Mér finnst að vefarar verði að hugsa sig aðeins betur um og ekki vera svona fljótir að heimta meira og meira og meira…