Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  GREINAR 
Höfundur:
eZtro
Dags:
11. júlí 2006 - 16:17
Samþykkt af:
JonGretar
Fjöldi lestra:
2576

Gefa álit

Íslensk vefhýsingarmál

Það er sama hvert litið er í þessu ágæta þjóðfélagi, hvergi er sá staður hérlendis þar sem ég sé hýsingu sem mig langar í. Það er ekki endilega út af þeirri staðreynd að hýsing á Íslandi er aðeins yfirverðlögð, heldur út af því að svo virðist sem flest vefhönnunarfyrirtæki Íslands hafa ákveðið að gefa sér að allir sem kaupa sér vefsvæði séu hálfvitar.

Ég á enn eftir að finna eina lausn á þessu blessaða Alneti sem er (1) innanlands, (2) með SSH aðgang að skel, (3) með aðgang að undirlénum, (4) með möguleika á fjölda FTP aðganga og stjórnun þeirra, (5) möguleika á að stjórna sínum eigin póstföngum og svona mætti lengi telja.

Ég er orðinn langþreyttur á að íslenskar lausnir geti ekki og nenni ekki að keppa við erlendar lausnir. Allt sem ég bið um að mér sé sýnd tilhlýðleg virðing og mér þar með ekki boðið 5MB vefsvæði og tölvupóstfang.

Berum saman. "Símafyrirtæki X sem ekki er Síminn" býður upp á 50MB í geymslu sem grunnpakka sem kostar 2.500 í uppsetningu og svo 1.490 í mánaðargjöld. Nú langar mér í PHP og þeir setja það upp fyrir mig fyrir lítinn 2.000 kall. Án MySQL er PHP vita gagnslaust, og þar sem ég hef ekki gaman að textaskjölum fæ ég mér það og borga 2.000 fyrir. Þá borga ég 350 krónur fyrir að þeir geymi þetta á þjóninum hjá sér á mánuði. Allt gott og vel, nema ég vil fá góðar upplýsingar um hver er að koma inn á vefinn minn. Ég kaupi því 2.490 króna tölfræðipakka og borga 500 krónur á mánuði fyrir að safna þessum upplýsingum. Ég er alsæll, enda kominn með allt sem ég þarf fyrir og borga ekki nema rétt rúman 37 þúsund kall fyrir pakkann fyrsta árið.

En á PHP ekki að vera sjálfsagt? Á MySQL ekki að fylgja með? Svo fremi sem ég veit kemur það uppsett á FreeBSD og er auðvelt að setja upp á sambærilegum útgáfum Linux. Hvað með tölvupóstföng? Á ég að þurfa að borga 450 krónur og hringja í starfsmann þegar ég vil tölvupóstfang. Og af hverju fæ ég þá ekki að breyta lykilorðinu mínu? Lífið er erfitt.

En vippum okkur yfir Atlantshafið. Lítum aðeins á erlenda kosti. Hjá hýsingarfyrirtækinu sem ég er hjá núna (og það er ekki besti kostur markaðarins) get ég fengið fyrir 3.750 krónur árlega fengið 1GB af plássi, sem að vísu er takmarkað með 10GB af bandvídd. En þeir bjóða mér líka

- ótakmörkuð undirlén
- endalausa FTP aðganga sem ég get búið til sjálfur án þess að hringja í starfsmann
- CGI (sem hefði kostað 2.000 kall aukalega hjá vinum okkar í "Símafyrirtæki X sem ekki er Síminn")
- PHP
- Hægt að breyta villusíðum
- FrontPage stuðningur (2.000 kall þar)
- SSI
- Endalausa MySQL gagnagrunna þar sem ég fæ 1 hjá "Símafyrirtæki X sem ekki er Síminn"
- Endalausa tölvupóstaðganga sem ég get sett upp sjálfur
- Stjórnborð fyrir allt sem ég þarf að gera
- Tölfræðiþjón í stjórnborðinu
- Og svo margt margt fleira.

En hljómar þetta ekki eins og auglýsing? Ef þetta hljómar eins og auglýsing er það vegna þess að þetta er svo ótrúlegt, og okkur Íslendingum svo frumstætt, að allt lítur út fyrir að brögð séu í tafli.

En ég vil velja Ísland. Ég vil styrkja íslenskt atvinnulíf. Ég vil bjóða notendum upp á þjónustu þótt það sé "þessi tími mánaðarins" hjá Farice. Ég vil bjóða upp á íslenskt niðurhal.

Þess vegna geri ég þetta tilkall til forstöðumanna íslenskra frumkvöðla á Internetinu. Ég bið ykkur:

- gerið ykkur grein fyrir að sumir notendur ykkar kunna til verka
- hættið að láta einfaldar breytingar á þjónustu reiða á símkerfið
- lækkið verð
- hækkið fjölbreytileika

Og hvernig væri svo að vera með eitt stykki vélarhýsingu eins og hægt er að fá erlendis? Ég kem með tölvuna, mér er sköffuð stöðug og hröð tenging, ég borga, allir græða.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »

heyr heyr. Nákvæmlega ekkert í boði hér sem gæti nýst mér. Kommon. Ef það er vandamálið að þið kunnið ekki að setja upp VPS þjónustu þá skal ég glaður kenna ykkur.

------
Jón Grétar Borgþórsson
Organized-Ignorance.net | Me Dev, You Jane
Já, ég skil ekki af hverju ekki eitt einasta fyrirtæki býður upp á VPS. Það er svo auðvelt, sparar þjónustukostnað og hvetur lengra komna notendur til dáða.

Að fólk geti verið með rótarréttindi sparar líka kostnað fyrirtækja við að hringja og biðja um allt sem þarf að gera.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Ég veit að 1984.is bjóða upp á VPS fyrir 3000.- á mán. Vefhýsing með flestu af því sem þú nefnir kostar 800.- á mánuði.

Ekki er það nein viðurstyggð.

------
Já...fáránlegt verðlag á þessu, minnir að .is lén kosti 12þús startgjald...það bara hlítur að vera hægt að lækka verðmunininn, eins og íslendingar eru nú tæknisinnaðir.

------
dftpnkezln: For all of you reporting a score more than 100 as you iq lol @ you. How can you possibly score more than 100%?
dftpnkezln:I'm very happy with my score of 89.
Já, ég er alveg sammála verðin á öllu sem tengist netinu hérna á klakanum eru fáránleg.

Samt það hljóta að vera til einhverjar Innlendar hýsingar sem eitthvað vit er í og kosta ekki heil mánaðarlaun..

http://hysingar.net/ skilst mér að sé mjög fínt, en ég veit að sjálfsögðu ekki hvort þetta uppfylli þín skilyrði.
Vandamálið er nú líka að það er ekkert í boði nema bara venjulegt byrjendahýsing. Enginn að bjóða upp á pro þjónustu.

------
Jón Grétar Borgþórsson
Organized-Ignorance.net | Me Dev, You Jane
Já, það er reyndar alveg satt.. Allir/Flestir gera ráð fyrir að notendur sýnir kunni svo mikið sem ekkert fyrir sér í þessum efnum.
eitt sem ég get sagt er að svona útlensk fyrirtæki hafa allan til að selja til en íslensk vefhýsingar fyrirtæki hafa bara þetta litla land til að selja hýsingar til.... er ekki að verja nein fyrirtæki ég myndi líka vilja láta lækka þetta en ég held það sé nú ekki hægt að lækka þetta mikið

------
Hjól
Solid Bikes Custom AA
Stofna bara sitt eigið fyrirtæki, er það ekki mission eða? Hvað kostar ljósleiðari? anyone?

------
hnakki.com
Ljósleiðari er alltof dýr, held það sé bara málið að grafa upp gamla dial-up módemið :P
Heyr Heyr, Snilldar-Net félagi :D

------
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu, eftir áralanga og ítarlega rannsókn með háskólamenntuðum prófessorum og Sení-um, að LeðurBlökuMaðurinn er ekki með neitt PEW PEW.
Þess vegna rúlla ég með JárnManninum
Lobsterman skrifaði:
Þú ert prakkari og ég ritskoðaði á þér nebbann.

[/undirskrift]
"Símafyrirtæki X sem er ekki Síminn"

Afhverju að leita til Símafyrirtækja fyrir vefhýsingu ? Sure, eiga bandvídd - en þeir eiga ekki vélbúnaðinn né mannskapinn til að sjá um þetta (og trúðu mér, það þarf mannskap í að halda utanum þetta :))

Fyrir þá sem nauðsynlega vilja þetta og er sama um verðið, þá er auðvitað hægt að kaupa vélbúnað og borga einhverjum örfáar krónur í viðbót á mánuði til þess að sjá um þetta . . en þangað til að Símafyrirtæki sjá sér þann leik á borði og opna heila deild fyrir vefhýsingar þá finnst mér það dónaskapur að ætlast það til af einhverjum að bjóða upp á þjónustu þó þeir bjóði upp á einhverja aðra sem er lík henni.

Fyrirtæki sem hýsa vefi: mis.is, opex.is, go.is
Nóg til af fyrirtækjum sem leggja sig út fyrir það að hýsa lén og vefsíður - prófaðu þau.

Þar fyrir utan er mjög asnalegt að bera saman við útlenskar vefhýsingar þar sem þú borgar x fyrir vélarnar en X fyrir bandvíddina. Get ekki ímyndað mér viðbrögðin á Íslandi ef slíku kerfi væri komið upp.

Og nei, PHP og MySQL koma ekki uppsett með FreeBSD né neinu öðru kerfi, þó mjög auðvelt sé að biðja um slíkt strax í uppsetningunni.

Vélarhýsingarsalur er fín hugmynd, var lengi vel þannig í Bunker og var það bara snilld að vera með server þar, eina vandamálið var að þar kostaði að downloada að utan og slíkt mun halda áfram, því þó að ADSL sé komið með verðþak, þá kostar samt hvert MB umfram á ljósleiðara skilding.

Og ef þú getur komist af með 10GB transfer á ári, þá geturu alveg sett upp server heima hjá þér, fullt af fólki sem gerir það :)

(tilveran.is var í eldhúsinu fyrst um sinn og batman.is var undir rúminu hjá einum af stofnandanum þangað til að auglýsingar voru farnar að borga )

En ég er samt sem áður alveg sammála þér, það er bæði markaður og þörf fyrir það að eitthvað fyrirtæki taki sig saman og bjóði bæði upp á serverhýsingar og hýsingu fyrir vefsíður sem bíður upp á cPanel eða áþekku kerfi og mun ég hiklaust fara með mín viðskipti þangað ef slíkt kemur hingað á sanngjörnu verði.

En á þesslegum nótum:
Hvað finnst fólki um að einhver með Apache+MySQL+PHP vef borgi jafn mikið og einhver með frontpage/IIS/.net vef ?
Apache+mysql+php er opensource og þú þarft ekki að kaupa það, en IIS kostar og M$ leyfin kosta öll, og það ekki lítið.

Ætti að taka upp M$-tolla ? :)

------
Haddi
Furðufugl - hugi.is
Vinsamlegast athugið: Skoðanir sem birtast hér eru alfarið á ábyrgð JReykdal og tekur hann fulla ábyrgð
á þeirri angist sem þær geta valdið, nema þetta sé tekið fram.


Tilvitnun:
"Símafyrirtæki X sem er ekki Síminn"

Afhverju að leita til Símafyrirtækja fyrir vefhýsingu ?


Þrátt fyrir að verðlagning hjá OgVodafone sé út í hött get ég fullvissað þig um að þeir eru með frábæra þjónustu og mikinn sveigjanleika.

Það góða við að vera hjá símafyrirtæki er að maður veit að þeir eru ekki að lauma vefþjónum til útlanda og þeir eru ekki að reyna að selja manni einhver kerfi með pakkanum sínum.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Efaðist aldrei um það, það sem ég átti við:
Afhverju er það sjálfsögð hugsun hjá öllum að leita strax til Símafyrirtækjanna og vonast til að þeir reddi öllu án þess að rukka eins mikið og þeir geta fyrir það til þess að halda úti vélbúnaði og mannskap.

------
Haddi
Furðufugl - hugi.is
Vinsamlegast athugið: Skoðanir sem birtast hér eru alfarið á ábyrgð JReykdal og tekur hann fulla ábyrgð
á þeirri angist sem þær geta valdið, nema þetta sé tekið fram.
Auðvitað á að rukka MIKLU meira fyrir PHP/MYSQL...

------
p j e s i
bastard ;)

------
Haddi
Furðufugl - hugi.is
Vinsamlegast athugið: Skoðanir sem birtast hér eru alfarið á ábyrgð JReykdal og tekur hann fulla ábyrgð
á þeirri angist sem þær geta valdið, nema þetta sé tekið fram.
php/my SQL er fkn frítt!

------


Tilvitnun:
We R speeking the same language but u dont understand a word that im saying!

astoo3@gmail.com
What else is new?

------
p j e s i
I dont know

------


Tilvitnun:
We R speeking the same language but u dont understand a word that im saying!

astoo3@gmail.com
Þó svo að PHP/MySQL sé frítt þá kostar slatta af vinnustundum að setja upp, fylgjast með og halda við kerfinu.
Svo að vefþjónn uppsettur með PHP/MySQL er ekki frír.

------
"If it isn't documented, it doesn't exist"
dont care dont wannan know .. :P

------


Tilvitnun:
We R speeking the same language but u dont understand a word that im saying!

astoo3@gmail.com
Þá á maður að kunna Perl og láta gera þetta fyrir sig. ISPConfig er frítt :-)

Það er massa létt að gera allavega einhvers konar aðstöðu fyrir starfsfólk til að leysa svona hluti. Ef ég hringi í OgVodafone á sunnudegi á gagnagrunni vill oft svo vera að sá sem svarar segist hafa samband við tæknimann. Það tekur því oft einhverja daga að fá þetta í gang.

Það bætir ekki stöðuna að ég get nefnt nokkur dæmi þar sem ég hef pantað svona þjónustu og hún ekki komið jafnvel næstu vikuna. Það er eins og það sé visst hlutfall af beiðnum sem þeir týna.

Frekar að hafa hærra launað starfsfólk með meiri menntun sem léttir undir með þessum síendurteknu störfum.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Guð hvað ég er sammála þér, eZtro. En fólk þarf víst að borga í samræmi við pláss og bandvídd sem það notar.

En já, verðlag á íslenskri hýsingu og lénum er algjörlega út í hött. Það er svo sem skiljanlegt þar sem öllu þessu fylgir mikill kostnaður, þar sem það þarf vélbúnað, umsjón, internettengingu, bandvídd, og allt kostar þetta - og það ekkert lítið.

------
Gaui
Það er óeðlilegt verð á þessu öllu.
Vélbúnaðurinn er ekki factor. Íslenskur host setur alveg jafn marga notendur per server og þeir erlendu. Ef það eru færri kúnnar þá þarf bara að kaupa færri servera. Vissulega er nokkur startkostnaður í að setja upp server herbergi en það er bara start kostnaður sem hægt er að greiða upp hægt og rólega. Og það er svipaður kostnaður hvort sem þú ætlar að vera með góða eða slæma þjónustu.

Umsjón..... Ég hef nú ekki séð að þetta séu einhverjir experts sem að sjá um þetta hér á landi og ættu ekkert að vera á neinum svimandi launum. Þjónustan hér er afleit. Hjá mínum host þá er það þannig að ef að það er einhver niðritími sem var ekki planaður sem endist lengur en í hálftíma þá fæ ég mánuðinn fríann. Þarf ekki einu sinni að biðja um það. Reyndu að fá það í gegn hér á landi.

Bandvídd kostar hinsvegar... En það þarf eginlega bara að laga það. Allt sem tengist neti er alltof dýrt hér.

------
Jón Grétar Borgþórsson
Organized-Ignorance.net | Me Dev, You Jane
Hvar ertu að hýsa?

------
hnakki.com
Atriðið sem ég talaði um var hjá Hostway UK þar sem ég er með VPS. http://www.hostway.co.uk/virtual/virtual.asp

Er samt að flytja mig til ServerPowered vegna þess að mig vantaði öðruvísi uppsetningu og þarf ekki Plesk. Fæ einnig 3 ip tölur á serverinn minn sem að var life saver þar sem það þýddi að ég get rekið bæði Lighttpd og Apache.
http://www.serverpowered.com/vps.php

Annað sem vert er að skoða er:
http://serverpronto.com/
http://completelydedicated.com/
http://www.rackforce.com/

Basically.... Þú færð VPS eða jafnvel deticated vél fyrir það sama verð og þú borgar fyrir shared hosting án tryggðs uppitíma hér á landi.

------
Jón Grétar Borgþórsson
Organized-Ignorance.net | Me Dev, You Jane
Athyglisverð athugasemd hjá þér um verðsamanburðinn :) en ég persónulega myndi ekki þurfa deticated vél, en samt er ég 100% á því að maður ætti að hafa rétt á því án þess að þurfa að gera samning beint við RIX ...

------
hnakki.com
Mikið af þessum hosting leyfa einnig bara reselling. Hugmyndin er að þú sem vefhönnunarfyrirtæki leigir þér deticated vél með Plesk og býrð þar til shared accounta fyrir viðskiptavini þína.

------
Jón Grétar Borgþórsson
Organized-Ignorance.net | Me Dev, You Jane
Það væri náttúrulega væri sniðug hugmynd fyrir íslenskar síður en náttúrulega þó að t.d. ég pæli ekki í utanlandsniðurhali en sumir gera það. =/

------
hnakki.com
Hvernig væri að einhvr sem væri fróður um þessi mál myndi gera Lista yfir vefhýsingar innlendar/erlendar og bera þær samna og senda hérna inn sem grein ?
Ætti ekki að vera svo flókið að leita á google og skoða verð og breyta í ISK

------
hnakki.com
En vilt þú (og þínir viðskiptavinir) reiða á sæstrenginn? Og hefurðu borið saman hraðann á FTP samskiptum hjá OgVodafone og Bandarísku vefhýsingarfyrirtæki?

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Treystið þið Farice fyrir að stjórna uppitíma síðunnar ykkar?

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
95% sammála þér!
Go.is er samt með system sem þú getur búið til email sjálfur og sonna...

Reyndar er Ísland dýrt land!

Ef vissir mikið um hýsingar o.fl. þá væri ég tilbúinn að kaupa tölvu og system og hýsa fyrir fólk!

------
Ef þú ert með veikt hjarta eða auðsæranleg/ur, þá mælum við með því að þú stundir ekki áhugamálið.
IP talan þín er:194.105.224.24
Það er einmitt málið. Að setja upp vefþjón og reka hann er meira en bara að segja það. Flestir geta ágætlega komið upp vefþjóni með leiðbeiningum hér og þar, en þegar það kemur að því að reka hann og kunna að bregðast við skortir marga þekkingu.

Þetta þýðir að áður en þú getur almennilega selt hýsingarþjónustu verðurðu að lesa þér helling til um tæknileg málefni sem skipta máli, kunna handa þinna skil í UNIX og vita hvar öryggishætturnar leynast. Eða þú gætir farið í nám í kerfisfræði, sem því miður er ekki í boði fyrir alla.

En þegar þú ert kominn með vél, búinn að skella upp Linux, þá kemur stóra vesenið. Þú þarft að finna þér stað með ljósleiðara og öruggri tengingu ef þú vilt einhvern hraða, og þessir staðir eru ekki auðfundnir og ekki ódýrir.

Ég hef sjálfur sett mér þau markmið í kynningarskyni að læra um hýsingu, og er meira að segja byrjaður að setja upp vefþjón. Þar sem það hinsvegar stoppaði, var þegar símafyrirtækin kynntu mér plönin sín, sem eru með hlægilega litlum gagnahraða frá. Ég tékkaði síðan á Hive, þeir eru með ljósleiðaratengingu á 7.990 krónur - en ég hringdi niður í Orkuveitu, og þeir eru ekki á leiðinni að leggja ljósleiðara inn í húsið mitt.

Ég er alveg sammála, það vantar svona "colocation" hýsingu á Íslandi.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Þorðu þeir að nefna einhver verð hjá Orkuveitunni?

------
hnakki.com
Ég held að þetta sé reglubundin þjónusta, uppsetning dreifinets, og teljist því ekki til gjalda nema kannski ef maður biður um forgang sem hliðrar áætlunum þeirra.

------
Kveðja,
Friðrik Már Jónsson

Nýopnað blogg! Þú þangað »
Hvernig kemur stuff.is út hjá þeim sem það hafa notað?
Stuff.is hefur alltaf verið ágætlega ódýrt. Veit ekki með allt þetta sem þú ert að biðja um, en þú gætir prófað að spyrja.

btw.

Tilvitnun:
Og hvernig væri svo að vera með eitt stykki vélarhýsingu eins og hægt er að fá erlendis? Ég kem með tölvuna, mér er sköffuð stöðug og hröð tenging, ég borga, allir græða.

Þetta er hægt hjá t.d. Netsamskiptum og Groundzero.

------

m ú m í n á l f a r n i r . o r g
m ú m í n á l f a r n i r . o r g

Ég hýsi alla vefina mína á bluehost.com

Við erum á netinu. Skiptir einhverju máli hvar við hýsum vefina okkar. Förum þangað þar sem ódýrast er.
http://www.bluehost.com
ég skil afhverju..

300 Gigabyte Hosting Space (NEW!)
web hostingHost UNLIMITED Domains!!!
2,500 POP/Imap Email Accounts
3,000 GIGS of Transfer (NEW!)
SSH (Secure Shell), SSL, FTP, Stats
CGI, Ruby (RoR), Perl, PHP, MySQL
2000/2002/2003 Front Page Extensions
Free Domain Forever!
Free Site Builder (NEW)
24/7 Superb/Responsive Sales/Support

------
allabaddarí fransí
hmm ef það er raunveruleg eftirspurn eftir svonalagaðri þjónustu þá lyggur beinast við að eitthver stofni fyrirtæki hérlendis og bjóði uppá hana, við værum t.d. sennilega enn að dreyma um "frítt erlent" ef Hive hefði aldrei komið til skjalanna.

------
allabaddarí fransí
Vefhýsingaraðilar á Íslandi
- Go.is
- Octane.is
- 1984.is
- Vefhotel.com
- Siminn.is
- Vodafone.is

Af þessum lista (sem ég tek framm að er ekki tæmandi) get ég mælt með 3 af persónulegri reynslu og viðskiptum við viðkomandi hýsingaraðila.

Go.is
Go.is er eini hýsingaraðilinn á Íslandi (svo best sem ég veit) sem notast við cPanel. cPanel auðveldar bæði notendum og hýsingaraðila alla vinnu við það að halda uppi hýsingu. Hægt er að stofna netföng, mysql, ssql, subdomain, ftp aðganga, mail forward, MX entry o.fl. Ásamt þessu inniheldur cPanelinn innbyggðan file manager, 3 mismunandi vefpóstforrit og í raun allt sem að þú getur ýmindað þér að svona búnaður geti innihaldið.

Með þessu móti nær Go.is að styðja við þá "reyndu" sem að nenna ekki að bíða í símanum hjá Vodafone eða Símanum í 15 mínútur fyrir eitt skitið netfang!

Octane.is / 1984.is
Ég set þessa hýsingaraðila í sama dálk vegna þess að báðir bjóða þeir uppá skemmtilega "nýjung" á íslenskum vefhýsingarmarkaði. Octane.is byrjaði að bjóða uppá fríar DNS hýsingar fyrir nokkru síðan og hefur 1984.is fylgt þar fast á eftir. Báðir aðilar bjóða uppá mjög ódýrar hýsingar (Octane.is með 10.000 á ári fyrir 1 GB og fullt af auka drasli / 1984.is með 800 á mánuði fyrir 1 GB og fullt af auka drasli).

Aldrei hef ég fundið einhverjar takmarkanir á bandvídd hjá hýsingaraðilum á Íslandi og tel ég það gott.

Vodafone
Ég vill bæta þessu við í lokin þar sem að höfundur þessa þráðar talar um Vodafone (að mér sýnist) sem "Satan internetsins á Íslandi" (nota bene; þetta er sagt í djóki!). Ég er með vef í hýsingu hjá Vodafone og gerði ég það upphaflega vegna þess að vefurinn hefur stækkað töluvert undanfarið og fyrri hýsingaraðili gat ekki haldið utan um alla traffíkina. Það tók u.þ.b. viku að færa vefinn yfir á Vodafone, sem að telst gott miðað við stóran vef, og ég beið aldrei í meira en 30 sekúndur eftir því að fá samband við Nethjálp. Ég fékk Wild DNS (sem að ég hélt að myndi vera mikið vesen) á "no-time" og var nánast kominn með nýjan vef í hendurnar, hraðvirkari en nokkru sinni fyrr.

Því segi ég; Ekki dæma Vodafone áður en þú hefur smakkað þá (jukk!) - Þó svo að verðskráin þeirra líti út fyrir að vera dýr og þeir rukka aukalega fyrir allt þá eru þeir, án alls vafa, traustasti hýsingaraðilinn á Íslandi í dag.
- ótakmörkuð undirlén
ekkert mál að sjá um DNS'inn sinn sjálfur, skrái lén hjá erlendum aðila og hann er með rosa þægilegt webinterface fyrir eins mörg lén og ég þarf
- endalausa FTP aðganga sem ég get búið til sjálfur án þess að hringja í starfsmann
tilhvers ?
- CGI (sem hefði kostað 2.000 kall aukalega hjá vinum okkar í "Símafyrirtæki X sem ekki er Síminn")
tilhvers ?
- PHP
ef þú ert að tala um vodafuck, þá fylgir php hvort sem þú borgar eða ekki ;) veit af reynslu (borgaði ekki fyrir php, fékk php)
- Hægt að breyta villusíðum
.htaccess
- FrontPage stuðningur (2.000 kall þar)
eldgamallt rusl IMO
- SSI
aldrei notað þetta
- Endalausa MySQL gagnagrunna þar sem ég fæ 1 hjá "Símafyrirtæki X sem ekki er Síminn"
eini gallinn sem ég sé annars hægt að nota table prefixes
- Endalausa tölvupóstaðganga sem ég get sett upp sjálfur
http://www.google.com/a (allt að 1000 userar með 2 gb hver)
- Stjórnborð fyrir allt sem ég þarf að gera
vantar reyndar
- Tölfræðiþjón í stjórnborðinu
nota kóða teljara t.d. statcounter.com
- Og svo margt margt fleira.

margt hægt að gera af þessu sjálfur, ég hýsi hjá vodafone, er reyndar með frekar mikið af "Trouble Request" en hey shit happens, borgaði ekki fyrir php en nota það stanslaust :P keipti php og þeir föttuðu ekkert :) er með yfir 10 kerfi keyrandi á sama gagnagrunni og þau trufla ekkert hvort annað þar sem þau nota sín table prefix og ekkert annað :D

have fun

------
The Aztek
* keypti mysql en þeir föttuðu ekkert *

**admin það vantar edit fítus hérna !

------
The Aztek
http://www.servage.net/

510gb pláss
5010gb af umferð á mánuði (5TB)
ótakmarkaðar e-mail addressur
ótakmarkaðir ftp accountar

og fleira :D

allt þetta fyrir 6,35 evrur á mán sem eru 591kr ísl

------
GullMoli
Bara benda mönnum á Masson vefhýsingar http://www.masson.is ef þið eruð að leita að vefhýsingum á góðu verði.
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar