Steven Siro Vai (Steve Vai) Fæddur og uppalinn í Carle Place í Long Island, New York, Steve Vai var fjórði af fimm börnum foreldra sinna. Ást systur hans á tónlist hafði snemma mikil áhrif á hann og hann byrjaði aðeins 6 ára gamall að spila á orgel, um 10 ára aldur byrjaði hann að spila á harmóniku. Hann og systir hans Lillian byrjuðu snemma að reyna að spila saman, þau hlustuðu á plötur og spiluðu undir. Vai hlustaði aðallega á Led Zeppelin.

Árið 1971 - 1972 gekkst Vai í lið við þrjá stráka í hljómsveit að nafni The Ohio Express (þeir áttu sam ekki heima nálægt Ohio), einn spilaði á bassa, annar á trommur og söng og sá þriðji söng og spilaði á gítar. Vai var ekki byrjaður að spila á gítar á þessum tíma en byrjaði með því að spila á hljómborð og syngja en spilaði svo á gítar seinna meir.

Einn daginn bauðst honum að kaupa gítar á 5$, hann greip tækifærið, safnaði sér peningnum og keypti gítarinn. Hann þorði samt sem áður ekki segja neinum frá þessu því honum fannst það alltof svalt fyrir hann að spila á gítar. Dag einn ákváðu hann og Frank Stroshol (gítarleikarinn í The Ohio Express) að fara í gítartíma einhvers skrítins gítarista sem kunni virkilega að spila, þeir fóru til Joe Satriani. Þeir mættu í alla tíma og fylgdust vel með. Loks kom að því að þeir máttu ekki æfa lengur í kjallara Franks Stroshol og þar með endaði hljómsveitin The Ohio Express.

Sú hljómsveit sem var næst í vegi Vai var Cirus, í þessari hljómsveit kom Vai fyrst fram á sviði. Því miður kom að því að hinn gítarleikarinn sagði einfaldlega „annaðhvort fer Vai eða ég fer“ svo hætti hann að mæta á æfingar, seinna sagði trommarinn það sama (þeir veru að æfa í kjallaranum hans svo að hann vissi að hann væri úr myndinni og fór).

Loks komst Vai svo í hljómsveit þar sem hann gat verulega skemmt sér, það var hljómsveitin Ravage. Þeir spiluðu allt mögulegt t.d. Led Zeppelin, Alice Cooper, Kiss o.fl. Þeir spiluðu í partíum, á börum og í leikfimishúsum, þeir lentu í slagsmálum (auðvitað), voru handteknir og allt, enda voru þeir svo ótrúlega svalir…

Árið 1977 stofnaði Vai Jimi Hendrix cover band með trommara og bassaleikara.

18 ára að aldri vildi Vai komast í Berklee School of Music í Boston og pabbi hans seldi líftrygginguna sína til að koma honum í skólann. Fyrsta hljómsveitin sem Vai stofnaði í Berklee var Axis (1978-1979), þeir spiluðu mikið saman og í þessari hljómsveit samdi Vai mikið af efni sem var seinna hljóðritað á plötuna „Flex-Able“ (1984). Seinni hljómsveitin sem Vai stofnaði í Berklee var Morning Thunder (1979). Í þessari hljómsveit var spiluð meiri klikkuð tónlist og langir æfingartímar.

Frank Zappa hafði alltaf verið einn af uppáhalds gítarleikurum Vai og einhvernveginn náði hann í símanúmerið hans. Hann hringdi í Zappa og bað hann um að hlusta á sig spila, Zappa var svo hrifinn af honum að hann bauð honum að ganga til liðs við hljómsveitina sína árið 1980. Vai fór á hljómleikaferðalag með Zappa og hann kallaði hann ýmsum viðurnefnum eins og „Stunt Guitarist“ og „Little Italian Virtuoso“ (fyrir þá sem ekki vita þýðir virtuoso snillingur). Vai spilaði á plötur með Zappa eins og t.d. Tinsel Town Rebellion (maí 1981)You Are What You Is (september 1981), Ship Arriving Too Late (1982), Man From Utopia (1983) auk Them or Us and Thing Fish (1984) áður en hann hætti.

Fyrir árið 1984 hafði Vai byggt sér sitt eigið upptöku stúdíó og fór hann þá að fikta við að blanda saman jassi, rokki og klassík. Á endanum voru þessi verk gefin út sem platan „Flex-Able“, platan hefur mjög mikil áhrif frá Frank Zappa. Nokkru seinna á sama ári gaf Vai út sína seinni sóló plötu „Flex-Able Leftovers“. 1984 stofnaði hann bandið The Out Band, þau spiluðu aðeins saman nokkrar æfingar og spiluðu einusinni á sviði. Fyrsta bandið hans í California var The Classified, skemmtileg hljómsveit sem spilaði „fyndna“ tónlist. Bandið 777 var gott „djamm“ band með honum var Stu Hamm á bassa (þeir höfðu spilað mikið saman og verið saman í nokkrum hljómsveitum) og Chris Farzier á trommur. Fullt af efni frá þessari hljómsveit varð seinna mikið af kjarna plötunnar sem Vai gaf seinna út „Passion And Warfare“.

Eftir að hljómsveitin Alcatrazz hafði rekið gítarleikarann Yngwie J. Malmsteen gekkst Vai til liðs við þá. Hann hafði einn dag til að læra allt heila prógrammið þeirra og áður en hann fór á sviðið vissi enginn að Malmsteen hafði verið rekinn og allir öskruðu nafnið hans. Vai segist ennþá eiga upptökurnar af viðbrögðum fólksins þegar hann labbaði á sviðið. Og með þeim spilaði Vai á disk árið 1985 sem heitir „Disturbing The Peace“.

Sama ár kom Vai fram sem var gítarleikari djöfulsins í myndinni Crossroads. Eftir það fékk hann tilboð frá vini sínum og bassaleikara Billy Sheehan um að fara í prufu um starf í sólóhljómsveit söngvarans David Lee Roth sem hafði hætt með Eddie Van Halen fyrir stuttu. Vai fékk giggið og varð „frægur á einni nóttu“. 1986 sendu þeir frá sér plötu sem heitir „Eat ‘Em & Smile“, sú plata varð ein af efstu hard rock útgáfum þetta árið en Vai segir að honum finnist ennþá að sú plata var ein sú besta rokk plata á þeim áratugi. Einnig spilaði hann með David Lee Roth á plötunni „Skyscraper“ árið 1988. Vai og Sheehan öðluðust mikla frægt fyrir hæfni sína á hljóðfærum sínum og komust á forsíður margra gítar magasína í nokkur ár eftirá.

Árið 1988 gerði Vai samning við Ibanez fyrirtækið um sína eigin línu af gíturum sem kallast JEM 777. Um árið 1989 gengst hann til liðs við Popp/Metal hljómsveitarinnar Whitesnake og sama ár spilaði hann á plötunni „Slip of the Tounge“.

Árið seinna (1990) gaf Vai út þriðju sóló plötuna sína yfirallt sem heitir „Passion & Warfare“ platan var byggð á draumum sem Vai hafði dreymt sem unglingur. Platan sló gull og Vai var viðurkenndur sem einn besti gítarleikari þessara
tíma. Einnig bjó Vai til sjö strengja gítar í gegnum Ibanez um þetta leyti.

Á þessum tíma stofnaði Vai sína eigin hljómsveit sem hét VAI eina platan sem gefin út var með þeim heitir „Sex & Religion” , á þessari plötu var sungið, ólíkt fyrri plötu Vai. Platan olli vonbrigðum þannig að Vai sneri sér aftur að instumental lögum, hélt sig við sóló ferlinn í hljómsveit sinni Steve Vai og gaf út plöturnar „Alien Love Secrets“, „Fire Garden“ (1996), endurútgáfa af „Flex-Able Leftovers“ plötunni (1998) og „The Ultra Zone“ (1999). Seint á tíunda áratugnum sameinuðust Vai og Satriani aftur saman og héldu árlegt tónleikaferðalag sem þeir kölluðu G3 þar sem þeir tveir spiluðu auk einhvers auka gítarleikara, en svo var annar gítarleikari valinn næsta ár. Þeir gáfu svo út live plötu með tónleikunum árið 1997.

Um árin hafa þessir gítarleikarar spilað með á þessum tour í gegnum árin 1996 – 2003:

1996
Evrópa: Joe Satriani, Steve Vai og Eric Johnson (auk Kenny Wayne Shepherd nokkra af fyrstu tónleikunum).
N-Ameríka: Joe Satriani, Steve Vai og Eric Johnson.

1997
Evrópa: Joe Satriani, Steve Vai og Adrian Legg.
N-Ameríka: Joe Satriani, Kenny Wayne Shepherd og Robert Fripp.

1998
Evrópa: Joe Satriani, Michael Schenker og Uli Jon Roth.

2000
Joe Satriani, Steve Vai og Eric Johnson, upprunalega G3 gengið kom aftur saman til að spila saman eina tónleika í Kuala Lumpur, Malasíu.

2001
Joe Satriani, Steve Vai og John Petrucci, þeir spiluðu í Bandaríkjunum.

2003
Joe Satriani, Steve Vai og Yngwie J. Malmsteen, þeir náðu að spila í nærrum því öllum fylkjum í Bandaríkjunum.


Árið 2001 gaf Vai út sína fyrstu live plötu í fullri lengd sem heitir „Alive In An Ultra World“ og einnig gaf hann út takmarkaða útgáfu af 10 diska boxi sem hann kallar „The Secret Jewell Box“.

Vai stendur nú uppi með 4 Grammy tilnefningar og 1 Grammyverðlaun, konu, tvö börn, fullt af reynslu og virðingu og er talinn einn af bestu gítarleikurum okkar tíma. Vai er að mínu mati algjör snillingur og var það heppinn að fá að læra hjá þeim bestu, þ.á.m. Joe Satriani og Frank Zappa. Ekki er Vai búinn í tónlistarbransanum enn og er hann enn á fullu og jafnvel af meiri krafti en áður í mörgum verkefnum.
…djók