Óvá “gamligamli”. Ertu búinn að hafa spangir síðan í síðasta sumar, fáðu þér köku og konu.

Veistu, ég byrjaði með spangir árið 2006 í efrigóm og beisli líka. Ég var með spangirnar í 2 ár þegar ég fékk góm til að halda við en þá var ég ennþá með beislið. Svo losnaði ég við beislið og fékk spangir í neðrigóm og var enn með góminn. Svo gat ég hætt að nota góminn og er nú búinn að hafa þessar blessuðu spangir í 2 ár.
En nú í morgun er ég loksins orðinn það pirraður að mig langar að skekkja tennurnar í tannlækninum mínum með því að kýla hann og láta hann kveljast eins og ég. Ég fékk hvorki meira né minna en eitthvað tveggja tonna ferlíki upp í efri góminn á mér sem kallast þýsk skrúfa. Sú græja gæti verið í saw. Ég get ekki sagt “G” og á í mesta basli við að kyngja. Auk þess þarf ég að herða þetta drasl einu sinni á dag. Ég er með stanslausan hausverk, illt í kjálkanum og fleira. Það versta er að ég þarf að hafa þetta tryllitæki uppí mér í 3 mánuði. Ég sé ekki fram á að standast það.

hkaejhaklhbneruogmn1tubub2nu7 bunn uionuobojinklgjdfgbg