Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  KORKAR 
Höfundur:
Omerta
Dags:
29. september 2004 - 00:00
Fjöldi lestra:
4632

Gefa álit

Skífan vs. Deilir (DC)
http://213.220.94.44/deilir_lokar_timabundid.txt

Sniðgöngum Skífuna! (BT er í eigu Skífunar og er líka allgjört drasl svo :p) Þessi fáv**** eru að eyðileggja allt gamanið!

Deilis notendur og Hugarar, SNIÐGÖNGUM SKÍFUNA ÞESSI JÓL!

heyr heyr!

------
Music is my mother... and my father ... it is my work and my rest ...my blood, my compass, my love.
Jeff Buckley

| | Myspace | | MSN | |
þessar búðir eru allavegana komnar á bannlistann minn og eiga ekkert að vera að búast við að koma vel útúr þessu
Djöfull er ég ekki að vorkenna vælukjóunum, enda mest allt sem deilt er þarna ólöglegt efni. Það hlaut bara að koma að þessu enda stórfyrirtæki sem spila inn í og auðvitað bregðast þau við með viðeigandi hætti. Annars er bara minnsta mál að redda þessu; hætta að stela!

------
-axuz
ertu eithvað skemmdur í hausnum bregðast við með viðeigandi hætti my ass þeir ættu að vera glaðir með að þeir eru fá fkn feitustu auglýsingu ever útá þetta og það hefur verið marg sýnt fram á það að dreifing efna á netinu eikur sölu og hmmm hver skildi vera að græða á því svo stfu n00b

------
Error !
Skífan og co geta fokkað sér það eru alstaðar dóbistar og þeir taka notendur deilis kommon það er allt bannað það er meira segja ólöglegt að brenna diska en ekkert er gert í því

------
A man with dyslexia walks into a bra.
Þetta kemur Skífunni EKKERT við því það voru einhverjir hálfvitar að deila út myndbandi þar sem stelpu var nauðgað og barnaklámi þannig að það er ekki skrítið að löggan hafi farið af stað.
gaur það er bara einn liður í ákærunni sko þetta fannst bara af því að þeir fóru að skoða málið fyrir einvherju ári þegar að þetta var kært

------
Error !
Skil nú ekki hvaða rosa væl þetta er, miklir peningar í þessu og p2p orðið allt og “mainstream” hér á Íslandi til að láta þetta kyrrt liggja. Ekki það að það væri gaman að fá alla sína tónlist, tölvuleiki, bíómyndir og/eða þætti ókeypis ásamt fleiri hlutum :)
Ég er svona glæpamaður greinilega en hef samt reynat að láta þetta ekki hafa áhrif á mín viðskipti við verslanir eins og Skífuna .. hef reynt að setja mér minn eigine siðferðisstandard .. sem sagt ef ég fíla diskinn í tætlur kaupí ég hann ... t.d. ef þetta væri ekki fyrri hendi að ná sér í netinu myndi ég fá að hlusta á diskinn í versluninni en ég myndi bara kaupa hann ef mér fyndist hann virkilega þess virði .. sama á við tölvuleiki.
Ég hef hingað til verslað nær alla tónlist við Skífuna .. ætlaði að kaupa 3 diska núna þega ég fengi útborgað .. þó svo ég hafi þá á tölvunni ... en nei .. held ég panti þá frá erlendri netverslun í staðinn ÞVÍ ÉG MUN EKKI VERSLA PLÖTUR, MYNDIR EÐA LEIKI Á ÍSLANDI Á NÆSTUNNI !!!! Skífan er svo stór í innflutningi þannig að þó ég versli við Hagkaup er ég óbeint að versla við Skífuna

Það er á hreinu að Skífan er að tapa meira en hún græðir !!!

------
ahh, enga fjandans undirskrift takk :)
Það þarf ekkert að rífast um hvort að þetta sé lögbrot eða ekki. Höfundarréttarlög eru alveg skýr.

Það sem er hins vegar undarlegt er að ekki fyrr en tölvur og p2p koma fram höfðu höfundarréttarsamtök ekki amast við þess háttar hátterni. Þegar vídeótækin komu var jú boðið upp á möguleikann að taka upp og fjöldi fólks tekur enn þann dag í dag upp efni úr sjónvarpi eða er með tvö tæki heima og afritar leigðar spólur. Það er ekkert við þessu að gera, enda gera þetta svo margir að það tæki þúsöldina á enda að ætla sér að ná utan um öll þessi brot. Þar áður voru það kassettutæki, þar sem hljómplötur voru afritaðar eða lög tekin upp úr útvarpi. Ekki rekur mig minni til að nokkur hafi verið kærður vegna þessa. Hins vegar henti ég um daginn kassa fullum af kassettum sem allar voru uppteknar efni sem ég hafði ekki greitt fyrir. Lögbrot? Já, vissulega, með þessu hafði ég þverbrotið höfundarrétt.

En SMÁÍS og STEF fengu það í gegn að á öllum óskrifuðum diskum og hörðum diskum er STEF-gjald, þe. þegar þú kaupir óskrifaðan disk, gerir löggjafinn ráð fyrir því að þú munir nota hann til ólöglegra verka (hversu siðlaust er það, að ríkisvaldið geri ráð fyrir almennum brotum og rukki fyrirfram? Hvernig ætli manni yrði við ef maður fengi sekt heim til sín vegna umferðarlagabrots sem væri stíluð fram í tímann og í skýringu: Vegna hugsanlegs brots?). Þetta þýðir að mörg fyrirtæki; sér í lagi þau smærri; sem skrifa aðeins á diska sína gögn, þurfa að greiða þessi gjöld. Er það sanngjarnt?

Ég held að hinn almenni tölvunotandi þurfi ekki að kvíða miklu. Einhvers staðar sá ég að yfir 6000 einstaklingar væru með +100gb í share og ef að lögreglan færi að eltast við alla þá, myndi rannsóknin aldrei standa undir kostnaði og kærendur fengu ekki nema brotabrot af þeim skaðabótakröfum sem þeir hefðu frammi.

Það skal þó tekið fram, að ég er með engu móti að bera blæ af hinum brotlegu í þessu máli. Þetta er lögbrot, á því leikur enginn vafi. Það sem er hins vegar vafaatriði er sönnunarbyrði ákæruvaldsins og spurningin: Hvers vegna var þetta ekki gert miklu fyrr? Hvers vegna var þetta ekki gert þegar kassettutækin komu fyrst á markað? Eða þegar vídeótækin komu? Eða þegar DC++ opnaði fyrst?
langar bara að benda þér á að það hafa áður verið aðgerðir út svokallaða sjóræningjastarfssemi, bankað var upp á stórtækum afriturum og söfn gerð upptæk.... við erum að tala um eighties sko...

þetta var ekki stundað stíft en bara nógu mikið til þess að fólk héldi þessu temmilega mikið neðanjarðar....

með dc er þetta orðið svo opið og augljóst að skýrt þótti að það þurfti að "hvetja" til þess að þetta færi meira neðanjarðar .... þetta var nefnilega byrjað að fara úr böndunum ... [þetta er samt bara mín tilfinning fyrir þessu]

og varðandi að skattleggja geisladiskana, þá er það heldur ekkert nýtt. Myndbandsspólur og kassettur voru skattlagðar af hagsmunaaðilum á sínum tíma og eru það líklegast enn... [eitthvað sem kemur aldrei fram í umræðunni]

og ef einhver hefur áhuga á lögfræði lógíkinni á bakvið þessa skattlagningu þá virkar hún nokkurn vegin svona:

*Það eru ákveðin "fair use" ákvæði í lögum um leyfilega afritatöku einstaklinga á efni.
*Til þess að bæta hagsmunaaðillum upp hugsanlegt tekjutap vegna þessarar leyfilegu afritunartöku þá eru miðlarnir skattlagðir [spólur diskar o.s.frv.]

skattlagningin var á engan hátt tengd því að bæta stef eða öðrum aðillum upp ólöglega afritun á efni þó svo að það hafi litið svo út í umræðunni, en eins og oft þá gefa fáir sér tíma í að lesa sjálf lögin heldur gaspra bara út og suður um málið... og ekki minnkaði misskilningurinn þegar maggi kjartans gerði ekkert nema að tala um ólöglega afritun á sama tíma...

ekki að ég sé á "hlið" stef í þessu máli, en rétt skal vera rétt...
Halló...enginn heima?

Þarna voru framin lögbrot í stórum stíl...og þið eruð actually það vitlaus að verða fúl?

------
JReykdal
Nobody special
Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
Nákvæmlega! Reyndar var ég dáldið skelkaður því ég var inni að sækja löglegt efni og deildi bara löglega fengnu efni...*hóst*

------
Sjáumst
Þú verður nú ekki sakhæfur fyrr en eftir 4 ár eða svo þannig að þú getur andað rólega.

------
l
a
g
g
Auðvitað.... reglur eru til þess að brjóta þær.. right?

------
Grímur D
Rétt, en samt er þetta svar ekki að hjálpa með að réttlæta okkar málstað!
Og þú ert það vitlaus að halda því fram að þú sért ekki í vinnu hjá síafbrotafyrirtæki.

Passaðu glerhúsið....

------
EVE-Online: Minuz1-Shinra
Wow: Hetjuklúbburinn.
CupofJoe (resto/feral tank) Guild Leader
Slefberi (holy/disc prestur)
Dainese (combat/BG rogue) Buckangel (enhancement shaman)
Lögbrot eða ekki lögbrot. Ég borga af stöð 2, Rúv og sýn um 9000 kr mánaðarlega. Mér fynnst ég ekki vera að brjóta nein höfundarréttarlög þegar ég fer á DC og sækji nýjasta þáttinn af svínasúpunni, eða that 70´s o.s.frv. Ekki frekar en ef ég tæki þetta upp úr sjónvarpinu með video-tæki.
djöfuls rugl ég kemst ekki inná núna
vá hvað þú kannt ekki að lesa.....

---
Ekki er leyfilegt að hafa nema annað hvort eina tilvitnun eða eitt kóðasvæði.
[Vefstjóri]

ekki það að ég noti eða notaði valhöll, var ekkert úrval af tónlist þarna, hvernig væri bara ef allt gengið sem var inná þessu mæti bara niðri löggustöð og biðji um að vera handtekin vegna þess að þeir séu með ólöglegt efni inná tölvunni sinni... væri eflaust gaman að sjá fangelsi landsins yfirfyllast... já og síðan svona í lokin, JReykdal ertu að segja mér að þú þekkir einhverja eina manneskju sem er eitthvað inní tölvumálum sem er ekki með að minnsta kosti einn ólöglegan hlut á tölvunni hjá sér?

------
ALL GLORY TO THE HYPNOTOAD!
hvað kemur það málinu við?

------
JReykdal
Nobody special
Vinsamlegast athugið: Skoðanir mínar sem birtast hér eru mínar og mínar einar en ekki
vinnuveitenda minna,vina og vandamanna, gæludýra og húsgagna nema annað sé tekið fram.
ekkert beint við málinu... bara það að þeir eru farnir að handtaka fólk og ef þeir ætluðu að fara handtaka alla þá sem eru með ölöglega hluti á tölvunni hjá sér væri það orðin þó nokkur slatti af fólki

------
ALL GLORY TO THE HYPNOTOAD!
Hvað telst ólöglegt efni og hvað ekki ?

------
No remorse!
Hey JReykdal. Er hugi þá líka ólöglegur?

------
...Trust me, I read it in a blog.
Við erum náttúrulega með hörðustu glæpamönnum, og mest skipulagðasta glæpastarfsemi íslands er Valhöll, og þúst ef þeir loka þessu þá auðvitað kaupum við sovna 1000 geisladiska á ári í stað þess að dl-a þeim, hver á ekki peninga í það ?

------
Hvað sagði litli fiskurinn við stóra fiskinn ! svar: fiskibolla !!!!!
Þá væri líka hægt að kæra lögguna....fyrst þeir eru búnir að fylgjast með deili í marga mánuði hljóta þeir að geta orðið dæmdir fyrir þetta, þeir eru líka að taka þátt í ólöglegu share

allavega hafa þeir verið lengur notendur en ég!!!

------
Shadows will never see the sun
Wurth breyttu undirskriftinni please. Hjartað er ekki ávalt vinstra meginn (sumir, reyndar afar fáir eru með hjartað hægra meginn og lungað vinstra meginn).
það eru lungu báðu meginn
Lungun eru 2 já og það eru til tilfelli þar sem lunga og hjarta eru eiginlega búin að "skipta" um stað.
hvað meinaru ég sagði djös rugl núna kemst marr ekki inná því að það er buið að loka þessu ég les alveg ágætlega
Hmm.. Sjáum til.. þeir frömdu lögbrot á STÓÓÓÓRUM skala.. Og verða að borga fyrir það :)

Samt.. ég furða mig á.. hví lögreglan er ekki úti að stöðva dreyfingu/sölu eiturlyfja og/eða vopna, frekar en sveitta drengi með tölvurnar sínar.

En well.. maður skilur vel hvað þeir eru að gera :)

------
Gummi Kári
Seize your humanity or you´ll become a statistic
En wait a minute.. skífan er að rassríða öllum á íslandi hvort sem er.

Þeir leggja Fáránlega mikið á tónlistardiska, og selja smásölum oftast dýrara en þeir selja í sinni eigin búð.

Veit fyrir víst að skífan fær geisladiska til sín frá útlöndum á sirka 1000kr stykkið eða minna, og eru að selja útá 2000-2500kr.

Síðan á skífan jú 50% af bíóum á íslandi og afhverju kostar bíómiðinn 800kr ennþá? Hann hækkaði með dollaranum en hann er núna kominn í fyrra form, en ekki lækkar verðlag hérna?

Þetta er bara rugl, og skífan getur sjálfum sér um kennt

------
ólinn-_-
Skífan (BT) er bara ömurlegt helvíti! Vona að þeir rotni þar!
Það er ekkert stórfyrirtæki að hella pening í þá til þess að gera það.
Kennum SMÁÍS og STEF um fíkniefnasölu og nauðgun.

------
Það eina sem ég bið um er logn á undan storminum...
Glymur hátt í tómri tunnu.

------
Gaui
Svo er Smárabíó í eigu skífunnar líka
sjett..allt að verða klikkað hérna..
eins og black out í new york r sum

------
---------------------------------
Give Peace A Chance

Let It Be. . .
----------------------------------
En ef skífan mundi standa á bak við svona lagað, þá væru þeir líklega að tryggja að fólk hætti algerlega að versla við þá.. er það ekki?

------
Varist að hafa orðið "vefstjóri" í undirskrift því þá tekur *vefstjóri það út! :) Vinsamlegast hafið ekki fleiri en 4 línur í undirskrift.
1. apríl eða ?

------
- Waldez

No one calls me a retard, you friggin' hobo !!
skífan á skítanóg af peningum og geta bara drullast til að sætta sig við það að fólk sé að stela frá þeim :o)

ef þeir mundu lækka verðið á öllu þessu ans drasli sínu þá mundi salan svona hækka um 40%

------
Dyggur stuðningsmaður AS Roma frá hinni eilífu borg.. FORZA ROMA
Stigmata sagði:
Af allir myndu nota bara google þá væri ekki mikill hugi..
Eithvað við mig að segja? snidugt@hotmail.com
Reyndar, ef að hætt væri að stela af þeim mundi verðið lækka....það er sannleikurinn.
Deilir er ekki að brjóta lög, heldur notendurnir! Svo láta Deili í friði!
segi það.. sektum bara notenduna.. 100 kr mb sem þeir eru að shera.. ;)

------
---------------------------------
Give Peace A Chance

Let It Be. . .
----------------------------------
Hehe ;) Nei takk, bara LÁTA KJURRT, ÞETTA ER Ó Ó! :þ
já það væri kanski bara betra ;P

------
---------------------------------
Give Peace A Chance

Let It Be. . .
----------------------------------
reiknum aðeins.. :P
266 TB gera 272.384 GB sem gerir 278.921.216 MB sem gerir 27.892.121.600 kr.. that would be so awesome :p

------
Don't have a signature... Don't need a signature... Don't want a signature!
Iss hversvegna þarf maður tónlist af dc?


ég syng mér til skemmtunar

------
They may take our lives but they'll never take our freedom!
verið samt öll róleg Belgarath kemur og bjargar okkur öllum á endanum

------
They may take our lives but they'll never take our freedom!
Ég veit ekki betur en að stef séu að taka gjöld af öllum geisladiskum, spólum, ipod, mp3 spilurum osfr.

Óháð því hvað sé geymt á þessum hlutum. Það er bara reiknað með því að það sé stolið.

Ef að ríkið reiknar með að fólk ræni og rukkar þessvegna fyrir (áður en brot er framið). Þá "stel" ég með góði samvisku.

-

Ég veit ekki betur en svo, að skífan hafi verið með met sölu á hverjum jólum. Bíóferðir unglinga eru að aukast osfr.

Við kaupum jú gjarnar dvd diska frá amazon og fleiri vefsíðum, en það eru teknir skattar af því.

-

Þetta er bara svona svipað og þegar vínilplöturnar komu, þá héldu allir að fólk myndi hætta að mæta á tónleika.
Spólur komu og krakkar fóru að taka upp, úr útvarpinu.
Geisladiskar komu og krakkar fóru að brenna sín eigin lög.
Mp3 kom og krakkar fóru að sækja lög í stórum stíl.

Þetta er bara eðlileg hræðsla. Málið er það að eftir að ég fór að stela mp3 lögum, þá fór ég að hlusta á hljómsveitir sem ég hefði aldrei hlustað annars á.

Sem gerir það að verkum að ég fer mun frekar á tónleika og jafnvel kaupi diska.

p2p gefur littlu (uncorperate) böndunum meiri möguleika t.d.

-

Ég sem dæmi hef farið í bíó (eða tekið á video) flestar þeirra mynda sem ég hef downloadað á tölvuna.

-

Ég er kannski bara svona rosalega bjartsýnn. En ég sé bara gróða hjá öllum aðilum.

-

En ef að tónlistariðnaðurinn lendir í einhvejru bastli, þá vill ég frekar að ríkið leggji á okkur óbeina skatta. Svona "ránskatta". Gæti verið svona 500kr á hvert heimili. Það ætti ekki að bitna á buddunni en myndi bjarga Bjarna Ara, Gunna Þórðar og öllum hinum tónlistarmönnunum

500kr, það gera jú hvað... Tæplega 145 miljónir á mánuði.
Sem er öruglega margfalt andvirði þess, sem er rænt á netinu.

-

Btw. Ég heitir Baldvin Mar og ég er glæpamaður

------
baldvin mar smárason www
já ég er allveg sammála þér með að maður kynnist fleiri hljómsveitum og fer þarmeð á fleiri tónleika og kaupir fleiri diska, og ég er líka sammála þér með allt hitt
Þetta er nákvæmlega málið!!!

1.Maður dl einu lagi með einhverri hljómsveit sem einhver notandi segjir manni frá

2.Maður verður alveg heillaður af laginu

3. Dl fleiri lögum af deili.

4. Kaupir nokkra geisladiska út í búð.

Skífan getur ekki annað en grætt á þessu.

------
Shadows will never see the sun
Hey heyr!!

------
_____________________

Sleppum þessu bara....
ertu hægri sinnaður? ertu ekki að meina wright?

------
Dyggur stuðningsmaður AS Roma frá hinni eilífu borg.. FORZA ROMA
Stigmata sagði:
Af allir myndu nota bara google þá væri ekki mikill hugi..
Eithvað við mig að segja? snidugt@hotmail.com
uuhhh nei þetta þýðir : er þetta rett hjá mér... eða er þetta rett hja mér?!? Þetta er úr bíómynd sko...

------
_____________________

Sleppum þessu bara....
ertu slefandi fæðingarmongólíti right þýðir hægri og wright þýðir rétt gáðu í orðabók

------
Dyggur stuðningsmaður AS Roma frá hinni eilífu borg.. FORZA ROMA
Stigmata sagði:
Af allir myndu nota bara google þá væri ekki mikill hugi..
Eithvað við mig að segja? snidugt@hotmail.com
hvernig væri að þú myndir gá í orðabók?
Vá rólegur á því að æsa sig!! Fyrirgefðu það að eg gerði eina stafsetningarvillu....

------
_____________________

Sleppum þessu bara....
þér er fyrirgefið

------
Dyggur stuðningsmaður AS Roma frá hinni eilífu borg.. FORZA ROMA
Stigmata sagði:
Af allir myndu nota bara google þá væri ekki mikill hugi..
Eithvað við mig að segja? snidugt@hotmail.com
Lögreglan á Íslandi er í hnotskurn, þetta er svo sorglegt.
Fólk þarna úti er að keyra á 70km/h á 30km/h götum, en í staðinn fyrir að gera gagn í lífinu ákveða þeir að targeta fólk sem situr inni í tölvunni.

Langar mest til að fara niður á næstu lögreglustöð og skíta á planið þeirra

------
Kveðja, Viktor.
Avoid hangovers, stay drunk!



Tilvitnun:
Það ætti að taka alla Færeyjinga úr færeyjum og flytja þá til Íslands og kenna þeim ekki Íslensku og svo mundu þeir alltaf tala svo fyndið og allir hlæja að þeim og hætta að vera þúnglyndir.

Get this.. Hugsaðu nú ekki bara um umferðarlagabrjótana.. heldur eiturlyfjadílera.. osfr?

Hvað um þá?

------
Gummi Kári
Seize your humanity or you´ll become a statistic
þetta er pottó bara einhvað grín sko..

------
Moreno of #clanwg
Geez-.-
etta er ekkert grín.. engin opp á valhöll +
http://www.deilir.is +
http://www.hublokun.tk/ +
http://www.barnaland.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=868878&advtype=52&page=1
og ég veit ekki hvað og hvað :|

------
---------------------------------
Give Peace A Chance

Let It Be. . .
----------------------------------
meinar.. en sko, Skífan er ekki að kæra userana á höbbunum.. þeir eru að kæra deilir.is !!!!!!

------
Moreno of #clanwg
Geez-.-
Ég tók svona mjög low profile lögbrot, en eins og þú segir, hvað þá þessir hasshausar.

------
Kveðja, Viktor.
Avoid hangovers, stay drunk!



Tilvitnun:
Það ætti að taka alla Færeyjinga úr færeyjum og flytja þá til Íslands og kenna þeim ekki Íslensku og svo mundu þeir alltaf tala svo fyndið og allir hlæja að þeim og hætta að vera þúnglyndir.

En pælið í þessu. Það þarf ekki nema einn hrekkjalóm sem kemst í tölvuna hjá Eval og gerir allt vitlaust á hubbnum. Svo panic-a allir á hubbnum og dreifa þessum tíðindum eins og eldi í sinu þangað til allt er orðið brjálað!

.. eða hvað?

------
Varist að hafa orðið "vefstjóri" í undirskrift því þá tekur *vefstjóri það út! :) Vinsamlegast hafið ekki fleiri en 4 línur í undirskrift.
jaá þessvegna kemur í fréttunum um að lögreglan hafi sett 12 manns í gæsluvarðhald því að einhver sveittur drengur var að grínast í gegnum tölvuna hjá Eval

------
Dyggur stuðningsmaður AS Roma frá hinni eilífu borg.. FORZA ROMA
Stigmata sagði:
Af allir myndu nota bara google þá væri ekki mikill hugi..
Eithvað við mig að segja? snidugt@hotmail.com
Mér skilst nú að það sé bara búið að yfirheira opa og "orðið á götunni" er að stærstu(mesta share) lögbrjótendurnir hafi verið teknir, ATH ég er með þeim LAAAANG stærstu og hef ekki einusinni fengið símtal.... tók samt mest allt úr share...til vonar og vara (þó það væri of seint ef eitthvað er í gangi). Svo er verið að tala um barnaklám, aka shrek 2 og fleira....veit litið um það... en allavegana... Valholl er uppu og ég er þar!

------
Veit að stafsetningin er ekki fullkomin...reinið bara að skilja og ekki benda mér á villurnar... megið svosem leiðrétta fyrir aðra.. en ég nenni ekki neinum aulabröndörum endalaust um tilgangslaust efni!
"það hafa 19 manns verið sektaðir hja okkur og útaf þvi að þeir voru með myndir af folki sem var myrt og það tekið upp og nauðganir færð sext og bann fyrir það þvi við segum lögguni fra þvi og hverjir eru með það en þu færð ekki sekt fyrir að vera þarna inna og deila lögum og biomyndum"

Var að heyra þetta!
Mikið endemis bull og vitleysa er þetta ....

ja hérna...


MadMax
Ekkert smá! Líka verið að tala um að stelpu hafi verið nauðgað, tekið upp, sett á netið og deilt á DC! Sick fávitar!!! :|
They had it coming... ekki hægt að fremja lögbrot fyrir framan nefið á almenning í endalaust langan tíma áður en einhver stígur inn í þetta.

------
Vilhelm
"I'm looking for some alien toilet to park my bricks. Who's first?"
- Duke Nukem
Kíkkið á greinina Nerds have feelings... :

http://www.blog.central.is/boxser/index.php?page=comments&id=152229

------
"Only two things are infinite, the universe and human stupidity, and I'm not sure about the former."
Albert Einstein
Skífan og Norðurljós hafa lengur verið að brjóta lög, nefnilega samkeppnislög. Hræsnarar.
Er fólk virkilega svo vitlaust að halda því fram að það sem gerist á dc++ sé í lagi, að afrita og dreifa efni sem er varið í bak og fyrir af höfundarrétti.

Það hlaut að koma að þessu, og satt best að segja þá er þetta hið besta mál.
Það fyrsta sem ég hugsa þegar ég fer á DC er að sækja mér lagið sem ég heyrði í útvarpinu og var gott "sem leiðir af" hlusta á lagið....sæki kannski annað lag með hljómsveitinni -> kaupi mér disk eða jafnvel DVD með hljómsveitinni í BT (sem eg btw geri ekki aftur)...hef aldrei farið á DC með því hugarfari að ætla að stela eins og brjálæðingur.
Svo kemur þetta og maður veit ekkert hvort maður eigi það á hættu að löggan komi til manns og láti mann borga mikla upphæð í sekt. Með þessu áframhaldi endar Ísland eins og USA er orðið (helvíti á jörðu).

------
www.soundcloud.com/muted
www.myspace.com/muteddnb
www.facebook.com/muteddnb
www.discogs.com/artist/Muted
Það er ekki ólöglegt að deila efninu!! það er hinsvegar ólöglegt að ná í það af netinu!! og það er líka satt að þetta gefur litlum hjómsveitum miklu meiri möguleika... og líka... ef að það væri kanski bíó þar sem ég bý þá færi ég kanski að sjá þessar myndir þar...

------
------------------------------------------------
"In Soviet Russia, car drives you!"
:::::::::::::::::::
You can´t just give up hope just becous it´s hopeless! You´ll have to hope even more, and cover your ears and go: bla bla bla bla... -Phillip J. Fry
Aldrei mun ég versla við Skífuna aftur!!! :| :| :| Helvítis græðgi að drepa suma greinilega! Og já þetta með lögguna... ég er alveg sammála, þeir geta haldið sig við sín venjulegu skilduverk í stað þess að ráðast á þá sem sitja við tölvurnar heima hjá sér.

Btw, þetta er á forsíðu morgunblaðsinns í dag...
Voðalega er fólk blint í sinni sannfæringu um að niðurhald á hinu ýmsu efni, sbr. bíómyndum, tónlit ofl. af deili (og öllum þeim FTP. netþjónum sem það kemst í) sé í lagi. Þetta er ólöglegt, hvernig sem litið er á málið.
Þið segið að þar sem ríkið setur stef-skatt á tóma diska eru þeir að gefa grænt ljós á að landinn steli eins og þeir vilja. Þetta er ekkert annað en stuldur. Punktur.
You all had it coming !

------
Dreitill Dropason esq.
Splashing away
niðurhald = niðurhal (og kannski eitthvað fleira)

Rusl að geta ekki editað sína eigin pósta (mætti vera tímamörk, 30 mín or something)

------
Dreitill Dropason esq.
Splashing away
Og að gaurarnir frá sambíóunum og skífuni sem hittast einu sinni á 6 mánaðar fresti til að ákveða hvað bíómiðin á að kosta næstu 6 mánuði? Plötur sem kosta 167 kr í innflutnigi séu seldar á 2000 kr? Bara spyr.

Þetta eru áræðilegar heimildir komnar beint frá mér þar sem ég vann hjá þessum mönnum.
Shit, helv*** fáv*****.. í skífunnuni...

Tek undir þessio orð: "SNIÐGÖNGUM SKÍFUNA ÞESSI JÓL!"

---
Of mörg línubil í undirskrift. Vinsamlegast hafið ekki fleiri en 4.
[Vefstjóri]

HAHA hvað menn eru blindir. Snilld.

Allt Skífunni að kenna að fólk sem var að stunda ólöglega hluti geti það ekki lengur. búhúúú
Siðblinda fólk

------
Dreitill Dropason esq.
Splashing away
Dreitill: Þú hljómar eins og pirraður tónlistarmaður sem "meikaði það" aldrei.

Ef það er byrjað að handtaka fólk fyrir að eiga "ólöglega" tónlist, af hverju eru þá stef-gjöldin ennþá á skrifanlegum diskum?

Ef ég yrði handtekinn með 10 skrifanlega diska fulla af tónlist, ætti þá að vera hægt að sekta mig? Ég er jú.. búinn að borga stef-gjöld.
Ég veit nú ekki. Þó ég sé virkur DC notandi þá er ég nú samt ekkert að fara hætta viðskiptum mínum við Skífuna. Ég er meira segja að fara líta á þennan stað í dag.

Ef þeir myndu loka fyrir DC þá væri ég ekkert of hrærður. Auðvitað hef ég dlað diskum og myndum enn það er mun skemmtilegra að eiga diskana(keypta þá) með hljómsveitum sem maður fílar. T.d. ég kaupi allt mitt Cypress Hill.

Allavega þetta særir mig ekki mikið...

------
Boggi Guðfaðir aka Brús Vein
Admin á hugi.is/hiphop
(sama og skrifaði á Deilir.) póstinn,
Ok þar sem ég veit eða
var sagt að eftir að oparnir fóru byrjuðu líka notendurnir að share'a drasli sem mátti ekki samkvæmt reglum deilis. (sem að ég segji þá eftir sem að maður hefur lesið) Margir eru síðan að segja "iss vissi að þetta myndi gerast einhvertímann, gott á ykkur" sem að eru að gera þetta sjálfir á fullu, þó að þetta sé ekki löglegasta í heimi er maður samt sammála NERDS have feelings greininni, ekki gáfáðasta í heimi var sagt að margir ætluðu að mótmæla þessu í dag, Skífan er samt langt í frá að vera gáfaðir í þessu máli, hafa haldið að þetta myndi hækka sölurnar en fólk verslaði þar aðalega ekki út af ofurháu verði, þetta tryggði bara að sölurnar minka um minnsta lagi 30% næstu daga/vikur þar sem það er aðalega svona "nördar" sem verslar í svona búðum plús þetta mun dreifast ábyggilega á örfáum klst um allt land í gegnum netið, kæmi svo sem ekki á óvart að þetta fyrirtæki færi þá á hausin ef allir eru sammála þessu, bt myndu kannski líka minka .. með sölur þar sem bt er víst í eigu skífurnar, oparnir reyndu að hafa þetta sem fínast, enda eins og sagði áðan var víst öllum andskotanum share'að eftir að þeir fóru (svo var mér sagt), aftur að Skífunni víst að BT er í eigu skífurnar og í flest öllum BT bæklingunum er verið að selja skrifara og dvd brennara, mp3 spilara og stendur við "brendu lögin þína á disk", þeir þá ekki jafnt sekir að gefa fólki hugmyndir með þetta?, BT er samt fínt en skífan verður bráðum óvinsælasta fyrirtækið á landinu.

good luck skífan (you're gonna need it badly) og skemmtið ykkur í framtíðinni! :)

held að þetta sé síðan sem löggan hefur um nörda

Profile: NERDS
loo: have big glasses, weapon: keyboards , mouse and hard drives, crimes: share stuff on the net

warning! these people are ARMED AND EXTREMLY DANGERUS!

(veit að extremly er virlaust skrifað)

------
J0h4nn3s
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1104653

lesa þetta ,, ef það séu ekki allir búnir af því :o

------
---------------------------------
Even Tho The World Sucks, It Wuld Properly Suck Even Worse Without Me!
----------------------------------
ég er sammála hef reyndar aldrei verzlað mikið við bt enn skífan suckar(stef) og og held ég að ef þeir vilja ekki missa alla sölu í tölvu heiminum á íslandi að þá ættu þeir að falla frá ákærum og byrja að sucka alla gaurana sem þeir kærðu og gefa deili fríar tövu uppfærslur það sem eftir er.

------
Error !
ég verð nú að segja að það væri kannski í lagi að loka ásgarði og miðgarði og þessu dóti þetta er jú ólöglegt en hvar á maður nú samt að fá tónlistina sína annarsstaðar á netinu,,, ef ég mætti velja milli þess að kaup einn disk á 2500 kall í skífunni eða downloada honum fyrir 3kr/mb einhversstaðar að utan þá yrði nú valið ekkert erfitt... ef skífan væri dáldið raunhæf með álaggninguna á diskunum sínum þámyndi maður miklu frekar versla við þá

en á meðan diskurinn kostar 2000-2500 þá læt ég mig nú hafa það að ná í tónlistina á netinu sama þótt það sé búið að loka íslensku serverunum
skil samt ekki heldur af hverju lögreglan getur fengið 30 lögreglu menn (sem er svoan helmingurinn af löggum á landinu) til að rannsaka dreifingu á lögum þegar að það ganga raðnauðgarar-og morðingjar lausir í sam félaginu og það er verið selja 12 ára gaurum hass væri ekki ráð að klára það fyrst og fara svo í það að vesen ast í nokkrum 0og1 þetta er bara rugl sko þetta er svona einsog að 40 þingmenn væri fengnir til að ráðskast með það í heilt ár hvað ætti að vera í matinn á afmæli forsetis ráðherra á næsta ári

------
Error !
það er sko búið að búa til helling af nýjum íslenskum höbbum núna
Ótakmarkað untanlands download, þá myndi maður bara
sækja sínar bíómyndir og tónlist af erlendum höbbum og ekkert vesen :)
Það er málið !
Einnig skal skoða að skífann á bíóinn: Smárabíó, Regnbogann og Laugarársbíó. Einnig eiga þeir Hljóðfærahúsið, Sýrland og grjótnámuna. Einnig eiga eigendur skífunar Office One Superstor, BT, Tæknival þannig sniðgöngumst þetta allt
Maður notar bara DC++ frá útlöndum en það skostar smá.
Það að einhverjir notendur deilis skuli vera sektaðir þegar trygginga-og olíufélögin sluppu fær mig til að vera svo reiðann!!!!!!

------
<GummO> er veikur og var að fara mæla mig og braut mælirin og það fór hvikaselur út um allt :O :O shit hvað ég var að skíta í mig af því hvikaselur er stórhættulegur :O:O
<Fluffster> hvikaselurinn er yfirleitt blíðlyndur, á meðan þú kássast ekki upp á kópana
<GummO> kópana??
Eins og skáldið sagði "Don't steal, the government doesn't like competition".

Annars hljótiði að vera að grínast með að vrea hissa á þessu :) ég er enginn engill í þessum málum, og myndi eflaust vrea vel óhress ef ég yrði tekinn fyrir að niðurhlaða lögum. En þetta er lögbrot, og þið vitið það alveg, getið ekki verið hissa á því að eitthvað sé gert í því.

Annars finnst mér reyndar ágætis rök í því að þar sem við höfum núþegar borgað STEFskatt á geisladiska að þá séum við búin að borga fyrir þetta efni. Ef það er ályktað sem svo að maður sé lögbrjótur við það að kaupa geisladisk, og látinn borga pening fyrir glæpinn, þá finnst mér nánast að ríkið sé að segja að maður geti allt eins verið lögbrjótur. En svona er þetta þegar ríkið fer að innheimta pening fyrir einkafyrirtæki.
ég veit alveg að þetta er ólöglegt og sætti mig svosem við það en ég verð bara pirraður af þessu sem ég nefndi hér að ofan...

------
<GummO> er veikur og var að fara mæla mig og braut mælirin og það fór hvikaselur út um allt :O :O shit hvað ég var að skíta í mig af því hvikaselur er stórhættulegur :O:O
<Fluffster> hvikaselurinn er yfirleitt blíðlyndur, á meðan þú kássast ekki upp á kópana
<GummO> kópana??
Það á bara að versla í Bókval annars er mér nákvæmlega sama þótt það sé búið að loka Deili.
Ótrúlegt hvað fólk getur haft staðreyndirnar vitlausar!!!!!


Tilvitnun:
Skífan er ekki að kæra userana á höbbunum.. þeir eru að kæra deilir.is
Það eru SMÁÍS (Samtök Myndrétthafa á Íslandi), Samtónn (SHF og STEF) og Framleiðendafélagið – SÍK sem eru að kæra.

og svo stendur á deilir.is:
Í fyrsta lagi hefur enginn sem stendur að Deili verið handtekinn eða komið að þessu máli á nokkurn hátt

"pilapina" skrifaði:
það voru einhverjir hálfvitar að deila út myndbandi þar sem stelpu var nauðgað og barnaklámi
Hvaðan hefurðu heimildir fyrir þessu? Ég hef aldrei séð nefnt barnaklám á fréttasíðum eða í fréttum

"killerade" skrifaði:
Rétt, en samt er þetta svar ekki að hjálpa með að réttlæta okkar málstað!
Þannig þótt að ykkar málsstaður sé rangur á enginn að segja neitt?

"wurth" skrifaði:
Þá væri líka hægt að kæra lögguna....fyrst þeir eru búnir að fylgjast með deili í marga mánuði hljóta þeir að geta orðið dæmdir fyrir þetta, þeir eru líka að taka þátt í ólöglegu share
Þú heldur s.s að það sé ekki hægt að deila neinu löglegu?

"viddib" skrifaði:
Wurth breyttu undirskriftinni please. Hjartað er ekki ávalt vinstra meginn (sumir, reyndar afar fáir eru með hjartað hægra meginn og lungað vinstra meginn).
Lélegast tilraun til leiðréttingar sem ég hef séð, mannskepnan er með tvö lungu!



Tilvitnun:
1.Maður dl einu lagi með einhverri hljómsveit sem einhver notandi segjir manni frá
2.Maður verður alveg heillaður af laginu
3. Dl fleiri lögum af deili.
4. Kaupir nokkra geisladiska út í búð.

Skífan getur ekki annað en grætt á þessu.
Öööö, en t.d. ef að maður kaupir ekki diskinn heldur downloadar bara fleiri? Hvernig er skífan að græða á því?
Amen!!

------
01011001 01101111 01110101 00100000 01101010 01110101 01110011 01110100 00100000 01100111 01101111 01110100 00100000 01100010 01101001 01101110 01100001 01110010 01111001 00101101 01100101 01100100
Þú spyrð hvernig skífan græði á því?

Tökum sem dæmi hljómsveit sem ég hlusta mikið á.

1. Ég heyri lag í útvarpinu eða einhverju
2. Næ í það af netinu
3. Kaupi diskinn frá skífunni (BT)

2.499kr- handa skífunni takk

Ég veit um marga eins og mig sem kaupa það sem þeir fíla, sannleikurinn er bara sá að ef ég hefði ekki haft aðgang að því að ná í lagið af netinu hefði ég aldrei keypt diskinn.

Ef lengra er út í þetta farið myndi ég bara sleppa því alfarið að versla þessa rándýru álagningarvöru ef ég vissi ekki hvað ég væri að kaupa, jújú, það er hægt að fá að hlusta í búðinni, en ég er ekki að nenna því að standa niður í skífu í tvo og hálfann tíma bara til að vita hvað ég er að borga fyrir.

Tónlist sem ég á hinn bóginn fíla ekki kaupi ég ekki, enda myndi ég heldur aldrei kaupa plötu eftir einhvern sem ég þekkti ekki, og myndi aldrei þekkja ef ég hefði ekki aðgang að lögum á netinu.


Ekki misskilja mig, ég veit að það er rangt að hlaða niður slíku efni á netinu, og mér kemur þetta ekki á óvart, en það er hægt að hlusta á fleiri hliðar en eina á þessu máli.
ohh, það var einhver sem sagði "Skífan getur ekki annað en grætt á þessu" og var að tala um það sama og þú sagðir, en ef að maður kaupir diskinn svo ekkert heldur heldur bara áfram að downloada? Hvernig er skífan að græða á því?
Ég veit alveg hvað þú sagðir, ég var bara að benda á það að ég þekki marga eins og mig sem kaupum það sem við fílum, og oft.
Lögregluaðgerðir vegna meintra brota á höfunarrétt (29/9)

Í framhaldi af fyrirspurnum um lögregluaðgerðir vegna meintra brota á höfunarrétti vill Skífan koma eftirfarandi á framfæri.

-----------------------------

Þeir sem kærðu meinta ólöglega dreifingu og brot á höfundarrétti voru Samtök Myndrétthafa á Íslandi (Smáís) en ekki Skífan.

Að samtökunum standa mörg fyrirtæki sem gæta hagsmuna rétthafa. Bergvík , Myndform, RÚV, Sam-Félagið, Skífan, Skjár 1 og Stöð 2. Auk þess starfa samtökin með Alheimssamtökum Kvikmyndarétthafa (MPA – Motion Picture Association), Samtón (Samtaka Rétthafa Tónlistar á Íslandi), NAPO (Nordic Anti Piracy Operations) ofl.ofl.

Skífan er vissulega einn af þeim aðilum sem standa að samtökunum og þá sem hagsmunagæsluaðilar erlendra rétthafa efnis. Þó svo að Skífan hljóti eðli málsins samkvæmt að vera á móti ólöglegri dreifingu afþreyingarefnis kom hún ekki á nokkurn hátt nálægt aðgerðunum. Öllum fyrirspurnum vegna þeirra er því vísað til skrifstofu Smáís

Það var ekki bara skífan og BT sem gerðu þetta heldur flest fyrirtæki sem versla með myndir leiki eða tónlist .. gangi ykkur vel að sniðganga allar þær verslanir sem eru í SMÁÍS ..
Nr.1 Deilir er brot á höfundarréttarlögum, okkur ber að fara eftir lögum í einu og öllu annars verður okkur refsað fyrir það.

Nr.2 Smáís og Stef standa fyrir ákærunni ekki skífann ´hun tengist þessu ekki neitt.
Afhverju veit fólk aldrei hvað það er að tala um!!??



Tilvitnun:
Nr.1 Deilir er brot á höfundarréttarlögum, okkur ber að fara eftir lögum í einu og öllu annars verður okkur refsað fyrir það.

Nr.2 Smáís og Stef standa fyrir ákærunni ekki skífann ´hun tengist þessu ekki neitt.

Deilir er ekki rassgat brot á höfundarréttarlögum. Ef að ég tengist til þess að sækja Linux ISO skrá til að spara utanlandsdownload á meðan ég er að share Stun Gun myndbandinu sem var gefið frítt á vef Quarashi, hvernig er ég þá að brjóta höfundarréttarlög??

Skífan tengist þessu nú bara víst, stendur á síðunni þeirra á eftir upptalningu á þeim sem kæra. "Skífan er vissulega einn af þeim aðilum sem standa að samtökunum....."

Haldiði kjafti ef að þið getið ekki haft staðreyndirnar ykkar á hreinu!!
SKÍFAN RUSL!! fávitar vita ekki neitt baun í þessu! hvernig gekk að selja 50cent miðar ? ha? 5000manns sem fóru á þetta helviti?
Skífan stóð ekki fyrir sölunni á 50cent, heldur einhver hálviti með nákvæmlega ekkert viðskiptavit. Eina sem skífan sá um í því efni var að selja miðana.
Þetta er nú farið að verða soldið mikið mál hjá ykkur. Ég meina þetta er einsog að sjá einhverja flotta mynd á netinu og taka hana og nota sem wallpaper á tölvunni þinni. Það að ætla að hætta að versla við Baug myndi leiða til mikilla hnignunar hér á landi, örugglega 20% þjóðarinnar fá innkomu sína frá Baug. Ef baugur myndi hætta myndu þessi 20% hafa minni pening, kaupa minna. Þar af leiðandi myndi verð hækka og við verða mun óánægðari. En ég vill fá DC aftur ekki misskilja mig. Ég meina ég er að læra hönnun og ég býst ekki við að neinn búist við því að ég kaupi mér einhverja 5 forrita pakka fyrir um eina milljón hvern, bara til þessa að læra heima. Kvikmyndir og tónlist sem ég næ í á netinu eru bara notaðar fyrir mig. En við verðum bara að standa saman gegn þessum viðbjóði, barnaklámi og öðru ekki við hæfi.

DC fyrir mig
kv. ExoduZ

------
Ef ég er ekki ég hver er ég þá?

ég er ég
Svari eytt af stjórnanda
heyr heyr

------
#newtactics ' dredinn da ice Simnet Rcon með meiru - Maðurinn, sem er með sverð og spjót í bakinu
(23:51:55) (@seven|vargur) registeraðist ekkert
(23:52:03) (@seven|vargur) held að ég hafi skotið meira i gegnum folk en i það
(23:52:23) (@[GOM]BMP) vargur, þú ert bara að vera gamall og þá hættir þú að hitta. þinn tími er liðinn kallinn minn
Ég er ekki nógu gáfaður til að skilja suma hérna

------
Empty

Ólesið Ný álit Lesið
TitillHöfundurDagsetning
TölvifíknCountessBathory2. september - 17:32
virkar bara á internet explorerflamma2. september - 11:28
þið sem sáuð tíufréttirnarperegrinus1. september - 23:46
Talva/tölva?hitdatbong1. september - 11:48
er hægt að láta hanna sérstaklegaperegrinus1. september - 00:42
dr. Ása þátturinn í kvöldflamma1. september - 00:00
SveppatínararStarr31. ágúst - 20:52
feisbúkZarko31. ágúst - 12:26
sleikLedann31. ágúst - 12:01
Hvar get ég fundið neon-sprey/sjálflýsandi sprey ?zdndz30. ágúst - 22:40
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar