Jólagjöf mín til Huga Heil og sæl.

Ég hef ákveðið að gefa Huga jólagjöf í ár sem er kannski frekar nýstárlegt en þar sem þessi vefur er (sorglega) stór partur af lífi manns þá finnst mér það vel réttlætanlegt.

Gjöfin er ekki í pakka eins og hér við hliðina á og þarf því ekki að opna hana neitt sérstaklega fyrir utan það að ýta á nokkra linka.

Ég hef nefnilega síðastliðið ár eða svo safnað saman ýmsum gullmolum af Huga, hlutir sem hafa látið mig skella upp úr, brosa eða grúfa andlitið í höndunum á mér (e. facepalm). Myndirnar eru 24 talsins og er tilgangur myndanna að sýna hversu yndislegur staður Hugi í raun og veru er. Ég vara þó við að þetta er allt misfyndið og sumt gæti verið einkahúmor hjá mér, flest er þetta þó nokkuð einfalt og skemmtilegt.

Ég vil taka það fram að þó að screenshotin sýni oft fram á heimsku eða fáfræði fólks er ég engan veginn að hæðast að þeim eða að lítillækka þau. Þetta er ekkert persónulegt.

Njótið:

Mynd 01 | Mynd 02 | Mynd 03 | Mynd 04
Mynd 05 | Mynd 06 | Mynd 07 | Mynd 08
Mynd 09 | Mynd 10 | Mynd 11 | Mynd 12
Mynd 13 | Mynd 14 | Mynd 15 | Mynd 16
Mynd 17 | Mynd 18 | Mynd 19 | Mynd 20
Mynd 21 | Mynd 22 | Mynd 23 | Mynd 24



Að lokum vil ég óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.