402 - Tooth Fairy Tats 2000 Lýsing:
Eftir að þeir komast að því að tannálfurinn er ekki til fatta þeir upp á því að stelast til annarra barna, stela tönnunum þeirra og setja undir kodda Cartmans og fá peningana sjálfir. Vandamálið er það að það eru þegar einhverjir komnir í þetta svið. Tannlæknasamtökin eru á sama tíma að rannsaka hvarf tanna og er aldrei að vita hvort þeir komast að því hver stal þeim í raun og veru.

Persónur í þessum þætti:
Mrs Cartman, Eric Theodore Cartman, Kenny McCormick, Kyle Brofslovski, Stanley Marsh, Timmy, Butters, Dr Roberts, Gerold Brofslovski, Loogie, Tom Foley, Fossie, Bebe, Wendy Testaburger, Chef, Weasel, Tom, Dan Anawa, Billie Circlewitch, Murphy,

Hvernig Kenny deyr:
Honum er hent í ánni rétt eftir að þeir eru búnir að svíkja Loogie en deyr ekki fyrr en hann reynir að hoppa í land en lendir í djúpum hluta árinnar og drukknar.

Athugasemdir:
Stundum er ruglað saman númerunum á þessum þætti og Cartman's silly hate crime 2000 sem á að vera númer 401. Þessi þáttur birtist á undan en var gerður á eftir hinum þættinum og þess vegna er hann númer 402.

Dulin atriði:
Hvernig á Stan að geta haldið á Cartman?

Uppáhaldsatriðið mitt:
Vísbending: A giant half-chicken half-squirrel.