112 - Mecha-Streisand Lýsing:
Skrímsli ógnar South Park, en hjálp er á leiðinni í formi Óskarsverðlaunahafa, vinsælum bíógagnrýnanda og rokkstjörnu.

Persónur í þessum þætti:
Wendy Testaburger, Bebe, Clyde, Kenny McCormick, Stanley Marsh, Eric Theodore Cartman, Pip, Kyle Brofslovski, Mr. Garrison, Craig, Butters, Chef, Leonard Maltin, Barbara Streisand, Officer Barbrady, Milo, Ike Moisha Brofslovski, Sally Struthers, Sidney Poitier, Jimbo Curnz, Ned Grublanski, The Mayor, Robert Smith, Sheila Brofslovski, Mr Hat, Jesus Christ.

Hvernig Kenny deyr:
Kenny spilar með bolta fasta á línu. Boltinn grípur hann og er hann kyrktur.

Dulin atriði:
Dagblaðið sem Mr. Garrison er að hylja sig með er með frétt um Mr Hankey.
Þegar þeir sjá þyrluna koma, þá öskrar Cartman “aliens” og hylur rassinn sinn.
Hreyfimyndin bakvið Chef og Leonard Maltin á meðan þeir eru að keyra er ekta.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Þegar Cartman finnur þríhyrninginn.