105 - An elephant makes love to a pig Lýsing:
Strákarnir reyna að blanda fíla- og svínagenum saman og erfðafræðingur bæjarnins býr til illan klóna frá genum Stans.

Persónur í þessum þætti:
Kenny McCormick, Eric Theodore Cartman, Stanley Marsh, Kyle Brofslovski, fíll Kyles, Ms Crabtree, Mr. Garrison, Mr Hat, Bebe, Clyde, Tokin, Pip, Terrence Mephesto, Shelley Marsh, Jesus Christ, svínið Fluffy, Alfonse Mephesto, Kevin (aðstoðamaður Mephestos), Chef, Elton John, klóni Stans, Tom (fréttamaðurinn), Officer Barbrady, Jimbo Curnz, Randy Marsh, Sharon Marsh, Weed (bekkjarfélagi), Bill (bekkjarfélagi), Fossie (bekkjarfélagi).

Athugasemdir:
Upprunalega nafnið á þættinum átti að vera “An elephant fucks a pig” Comedy Central breytti því.

Hvernig Kenny deyr:
Klóni Stans sparkar Kenny í örbylgjuofn og bakast hann þar.

Dulin atriði: Venjulegar eru mannverur ekki fæddir í fötum en fóstrið í tilraunastofu Mephestos er með húfu.
Chef er eingöngu að syngja inn á hljóðnema sem er tengdur við ferðakassettutæki, en það sést að söng Chefs er dreifður í gegnum hátalarakerfi.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Þegar allir eru að ruglast á klóna Stans og á Stan sjálfum.