603 - Asspen Foreldrar vinanna ákveða að fara til Aspen í skíðaferð til að kynnast hvor öðru betur fyrst að strákarnir þeirra eru svo miklir vinir. Þau fá ókeypis hýsingu í íbúð gegn því að fara á 30 mínútna kynningarfund hjá sölumönnum sem tekur miklu lengri tíma en þau halda. Á meðan eru strákarnir að kynnast félagslífinu og vandamálunum sem fylgja því að vera á skíðastað.

Persónur í þessum þætti:
Randy Marsh, Sharon Marsh, Gerald Brofslovski, Linda Studge, Chris Studge, Ike Brofslovski, Sheila Brofslovski, Stanley Marsh, Kyle Brofslovski, Eric Theodore Cartman, Butters Studge, Tad McCowsky, Phil, Josh, Stumper, Heather, Rauðhærða stelpan.

Athugasemdir varðandi þáttinn:
Lagið sem hljómar þegar þau eru að fara til Aspen heitir Take on me og er eftir Aha.

Dulin atriði:
Þegar þau fara til Aspen, þá sjá þau brosandi gaur sem er að taka eiturlyf í gegnum nefið.

Uppáhaldsatriðið mitt:
Seinni keppnin hjá Stan og Tad.