Er hérna rétt í þessu að horfa á Lion King 1, þar sem Laddi og Felix Bergsson ofl eru að tala og sjitt! Afhverju er talsetningin í dag ekki eins og hún var þarna? Ætti hún ekki að verða betri með þróun tækninnar og svo framleiðis?
Ég bara get ekki horft á teiknimyndir með Íslensku tali lengur því þær eru meira og minna allar ömurlega talsettar og raddirnar alveg glataðar!
Sá einmitt hérna brot af Alvin og Íkornarnir á Stöð 2 um páskana og ég bara slökkti á imbanum því ég varð bara pirruð á að hlusta á þennan skít!
Þurfti bara að koma þessu frá mér og vona að það sé ienhver sammála mér…
Og já, djöfull er Lion King 1 fokkin langbesta teiknimynd ever! Ekkert lítil legendary mynd…
Love it!