Family guy, sería fjögur, þættir 1-13 Sælinú.

Þetta áhugamál er frekar dautt svo ég ákvað að gera hérna eina grein um family guy season 4.

1. North by North Quahog

Peter stelur nýjustu myndinni hans Mel Gibson og Mel Gibson tekur Lois til fanga. Á meðan lendir Chris í vandræðum með alkóhól.

2. Fast times at buddy cianci Jr. High

Chris er skotinn í nýja kennaranum sínum - þangað til kennarinn hans biður hann um að gera svolítið sem er .. ólöglegt. Á meðan kennir Brian.. spes bekk.

3. Blind Ambition

Allir vinir hans Peters hafa gert eitthvað merkilegt. Peter reynir nokkrar tilraunir til að gera eitthvað merkilegt líka en mistekst - þangað til eitt skynfæri hans hættir að virka.

4. Don't make me over

Meg fer í lýtaaðgerð og verður þá sæt og vinsæl - og Griffin fjölskyldan býr til hljómsveit.

5. The Cleveland-Loretta Quagmire

Eftir að Peter “böstar” Quagmire og Lorettu í rúminu ýtir hann að Cleveland að gera eitthvað í málinu.

6. Petarded

Peter finnst æðislegt að fatta að hann sé heftur og þá geti hann gert allt sem hann vill - alveg þangað til það sem hann elskar mest af öllu er tekið burt.

7. Brian the Bachelor

Á meðan Chris talar við nýja félagan sinn - sem er bóla, þá fara Brian og Quagmire í sjónvarpsþáttinn “The Bachelorette.”

8. 8 Simple rules for buying my teenage daughter

Á meðan Peter selur Meg til Neils útaf 34 þúsund dollara skuld verður Stewie skotinn í barnapíunni sinni.

9. Breaking out is hard to do

Lois byrjar að stela úr búð en verður brátt handtekin. Peter kemur henni úr fangelsinu og þau þurfa að hefja nýjan lífsstíl.

10. Model Misbehaviour

Peter reynir að stoppa Lois þegar hún ákveður að verða módel - á meðan Stewie ræður Brian í vinnu.

11. Peter's got woods

Brian er of mikið með kærustunni sinni, Peter eignast nýjann vin og Stewie les “The Da Vinci Code”

12. The perfect castaway

Peter strandar á eyðieyju en kemst loks heim - en þá er Lois búin að giftast einhverjum öðrum - hverjum?

13. Jungle love

Chris er busi og er hræddur um að verða busaður - svo hann flýr á eyðieyju og býr þar.