Hér í þessari grein ætla ég að fjalla um snilldar persónuna Sonic sem er tölvuleikja fígúra og þáttafígúra.


Sonic er frá plánetunni Mobius sem er fæðingarstaður hanns.

Einu sinn var stríð á Mobius sem kallað var “Stríðið mikla”. Íbúar Mobiu voru undir stjórn King Acorn sem barðist gegn Overlanders en þeir líta út eins og menn, bara af óþekktum kynstofn. Sonic og vinir hans voru bara krakkar ófæddir (Sonic var fæddur). Einn daginn þegar tveir broddgeltir sem hétu Jules (faðir Sonic) og Sir Charles(Frændi Sonic), komu og björguðu öðrum Overlander sem hafði verinn tekin af öðrum Overlöndurum fyrir að skipuleggja svik gegn Overlöndurunum. Hann bauð King Acorn þjónustu sína og varð Warlord yfir öllum hermönnum King Acorns og með hans hjálp sigruðu þeir Overlanderana.

Sir charles var vísindamaður sem bjó til tæki sem hann kallaði Roboticizer og gat það breytt særðum líkamshlutum í eitthvað vélrænt.

King Acorn vildi eyða vélmannahernum en Sir Julian forritaði vélmennin til að hlýða aðeins sínum skipunum svo að hann tók völdin og gerði King Acorn útlægan til hiðs fjarlæga lands “Zone of Silence” og það gat bara verið hægt að ná þangað með “Transdimensional Transporter” (Víddarflutningstæki). Julian breytti svo nafninu sínu í Robotnik og með stolnu gögnunum af Roboticizer fór hann að breyta öllum íbúum Mobius í vélmenni og forritaði þau til að hlýða og þjóna sér. Fyrir heppni náði Sonic og fleiri að komast undan og flúðu til Great forrest og bjuggu til lítið þorp sem þau kölluðu Knothole sem var vel falið fyrir robotnik og þar var líka Sally Acorn prinsessa sem var dóttir King Acorns og hún átti að erfa hásæti Mobius.


Sonic

Nafn: Broddgölturinn Sonic
Aldur: 16
Starf hans: Hetja Mobius og Frelsisbaráttupersóna
Litur: Blár
Tegund: Broddgöltur
Fæðingarstaður: Christmas Island. Enginn veit um hana.
Vinir: Tails, Cream, Amy, Big, Rotor, Sally og Knuckles
Óvinir: Shadow, Dr. Eggman og Rouge

Upplýsingar: Sonic er hetja Mobius eftir að hann bjargaði Mobius (ekki sagt hvernig). Sem gerði hann að hetju Mobius. Sonic er hraðskreyðasti broddgölturinn á Mobius og þegar hann verður heitur er nánast ómögulegt að ná honum.


Shadow

Nafn: Broddgölturinn Shadow
Aldur: 50 Ára, en það skiptir engu hann er ódauðlegur
Starf: ekkert Hin endanlega lífvera @$$
Litur: Svartur, hvítur og rauður
Tegund: Broddgöltur
Fæðingarstaður: Geim nýlendan ARK
Bandamenn: Dr. Eggman
Óvinir: Allir fyrir utan Dr. Eggman

Upplýsingar:
Þetta er náungi sem þú vilt ekki standa í veginum fyrir. Hann talar sjaldgæft mál en þegar hann gerir það er hann ákveðinn. Hann talar um að vera hin endanlega lífvera og að hann geti notað hæfileika sína til að ferðast um tíma og flust á milli staða. Hann var af þeim tilgangi búinn til í geimnýlendunni ARK en var fundinn á Fangaeyju. Hann á margar minningar um Maríu Robotnik (móðir hans held ég) og hann sór það að hefna sín á þeim sem drap hana (sem var Sonic) og Shadow er til í blóðbað. Shadow er gaur sem þú vilt ekki ráðskast með.


Tails:

Nafn: Miles “Tails” Prower
Aldur: 10
Starf: Yfirvélvirki, frelsisbaráttupersóna, og besti vinur Sonics
Litur: Gulur og hvítur
Tegund: Refur
Fæðingarstaður: Fornar rústir
Vinir: Sonic, Knuckles, Amy, Sally, Big og Cream
Óvinir: Rouge, Dr. Eggman og Shadow

Upplýsingar: Þetta er refur sem er með tvö skott sem er vélvirki og finnst gaman að grafla í vélum og hann er frelsisbaráttupersóna


Knuckles:

Nafn: Skrápdýrið Knuckles
Aldur: 18
Starf: Verndari Master Island
Litur: Rauður
Tegund: Skrápdýr
Fæðingarstaður: Angel Island
Vinir: Sonic, Tails, Vector, Charmy og Espio
Óvinir: Allir sem reyna að stela demantinum hans

Upplýsingar: Hann er sterkur sem stál og og slær alla þá sem reyna að stela demantinum hans og hann hættir ekki að elta þá fyrr en hann finnur þá og hann er með hörðustu hnefanna af öllum íbúum Mobius


Dr. Eggman

Nafn: Dr. Eggman
Aldur: Óþekktur
Starf: Bráðgáfaður vísindamaður, einræðisherra Mobius og vondi náunginn.
Húðlitur: Hvítur
Stofn: Maður (Döh)
Fæðingarstaður: Óþekktur, en einhvers staðar á Mobius
Bandamenn: Shadow og mörg fleiri vélmenni
Óvinir: Sonic, Amy, Tails, Knuckles og frelsibaráttupersónur

Upplýsingar: Hann er vísindamaður sem er að reyna að ná Sonic af því að Sonic eyddi öllum illu áætlununum hans við að eyða borginni hans Sonics.