Ég hef tekið að mér að dæma Arena leik milli Krathosar og Tetos að þeirra ósk, og mun hann fara fram hér á þessum þræði þegar þeir hafa komið sér saman um leikreglur. Nýtið þráðinn í að ákveða þær, eða notið PM, mér er sama svo lengi sem þið látið mig vita af niðurstöðinni.

Bætt við 4. mars 2009 - 10:32
Keppendur hafa komið sér saman um þessar leikreglur. Ég mun setja inn völlinn þegar ég hef tíma til að búa hann til (er ekki skemmtilegra að hafa hann smá áhugaverðan, með pyttum, difficult terrain, cover og svona?).

Ég, sem dómari, vil hins vegar gera eina breytingu á reglunum til að flýta fyrir dómgæslu. Hún er sú að keppendur skuli skrá sig á síðuna www.invisiblecastle.com og framkvæma öll teningaköst þar sjálfir.
Peace through love, understanding and superior firepower.