Jæja þá er kominn tími á að reyna að endurvekja þetta hobbí.
En áður en það er gert er vert að endurskoða reglurnar og sjá hvort einhverju þurfi að breyta

Hér er hlekkur á gamla regluvirkið:
http://www.hugi.is/spunaspil/bigboxes.php?box_id=43616

Mér finnst reglurnar ágætar eins og þær standa, nema hvað að mér fyndist gott ef hægt væri að koma hlutum eins og teningakasti, character sheets, kort af borðum og annað slíkt í rafrænt form, svo auðvelt sé fyrir alla að nálgast slíkar upplýsingar og til að auka á skemmtanagildið.

Ef einhver hefur út á núverandi regluvirki að setja, leggið inn rökstutt svar fyrir því á þennan þráð. Ef nógu margir sýna lit hérna getum við svo gert annan þráð til skráningar. Einnig er ég tilbúinn ef áhugi er til staðar að útbúa svipað Arena fyrir 4th edition.
The Game - You just lost it