Kannski maður deili smá smásögu með ykkur. Titillinn í rauninni segir það allt. Þetta er frásögn þess þegar einn af spilendum mínum lenti í grátlegum atburðum og hvernig við hlógum okkur til hels eftir á.

Atburðirnir tóku sér stað í nWoD. Spilendurnir tveir voru málaliðar sem unnu fyrir samsteypu undir nafninu “Fraternity of Evolution.” Sú samstepya vinnur við að útrýma öllu því yfirnáttúrulega sem til er í heiminum, til að tryggja þróun mannkynsins. Ef til vill er það skondnasta við þær kringumstæður, að báðir spilendur eru supernaturals sjálfir. En hvað um það.

Spilendurnir tveir voru í Rússlandi, í litlum smábæ að rannsaka mannhvörf. Leitin leyddi til kirkjugarðs þar sem annar spilandinn (á eigin vegum) fann leið ofan í neðanjarðarbæli, læknastofu frá 1960. Þar inni læstist hann greyið, og horfði á rotið fólk rífa sig útúr líkgeymslum. Á meðan hann barðist, skynjaði vinur hans þessa atburði og fór af stað, fann sögu göngin (30metra göng beint niður) og hóf ferð sína niður.

Hann glemydi því að hann er ekki sterkasti maður í heimi og kann lítið til klifurs. Eftir að hafa failað á chance die við að komast niður, hrapaði manngreyið niður 20 metra… og lifði af (do not ask how). Ég var frekar grænn í kerfinu og vissi ekki alveg hvernig átti að höndla þetta… á endanum rollaði ég d10 upp á hversu margir “slæmir” hlutir kæmu fyrir hann. 7 kom upp.

Við byrjðuðum á damage, sem setti hann í near-dead. Svo fórum við í opið beinbrot… svo hvernig vasaljósið hans hafði brotnað… gleraugun líka… Við enduðum á því að þetta hafði svo mikil sálræn áhrif á hann, að hann myndaði Inferiority complex á staðnum. Úff…

En kallinn hélt áfram að skrölta. Hann dróg sig um og fann Morfín í þessum gömlu læknabirgðum sem þarna voru niðri. Annar chance die þegar hann sprautaði efninu í sig… fail. Hann fór í morfín vímu og gat varla einbeitt sér að neinu… Wound penalties voru farin… já já… en hann var svo haugaður að allt varð erfiðara. En áfram skrölti hann og byrjaði að reyna að smíða sér spelkur eða einhvern fjandann úr þeim takmörkuðu birgðum sem þarna voru. Í þetta eyddi hann korteri á meðan vinur hans barðist fyrir lífi sínu í næsta herbergi.

Að lokum skellihlógum við allir þegar hann ætlaði að smíða sér spelkur úr stafnum sínum. Já… hann gekk með staf og fattaði loksins “HEY! Ég er með staf! Hvað í bölvanum er ég að gera!?” Að svo loknu reysti hann sig við og haltraði af stað með stafinn sinn sem hækju. Á meðan drapst næstum hinn spilandinn og þetta má segja að hafi leitt til dauða NPC's sem var með þeim.

Af þessum seinheppna manni er það að frétta að hann er hægt og rólega að breytast í geðbilaðan draug einhverstaðar í Rússlandi… draug með sniperriffil.
EvE Online: Karon Wodens