Ég er mikið fyrir nýbreytni hér á áhugamálinu en get ég ekki séð tilganginn með því að hafa ævintýrin á svo augljósum stað.

Flestir sem eru hérna myndu lesa þau hvort eða er. Jú þú gætir svosem tekið upp á því að treysta(!) spilurunum þínum en ég myndi ekki geta keyrt ævintýrið með það í hausnum að kannski viti þeir allt saman. Það væri hinsvegar betra að DM'ar segi meira frá ævintýrum sem þeir hafa gert og notað (og hyggja ekki á að nota aftur obbvíuslí) til þess að fá að vita hvað gekk upp og hvað ekki. Það væri betur hægt að nýta í heildargerð ævintýra fyrir okkur hin.