Skráning spilara fyrir stóra spunaspilamótið helgina 14.-15. nóv stendur nú yfir!

Hægt er að fara í Nexus og borga sig inn á mótið þar. Við greiðslu fær maður skráningarkóða, sem maður nýtir svo til að skrá sig á borð á heimasíðu mótsins. Hægt er að skoða heimasíðuna með því að smella á hlekkinn http://www.internet.is/spunaspil.

Nú þegar eru 3 borð orðin full og þeim fer óðum fækkandi sætunum sem í boði eru. Því eru allir spunaspilarar hvattir til að drífa í skráningu.