Jæja kæru spunaspilarar.

Allt þokast í rólegheitunum áfram í rétta átt með nýja spilafélagið. Búið er að vinna staðfastlega að undirbúningi móts næstkomandi haust, og má gera ráð fyrir að þið fáið frekari og ýtarlegar fregnir af mótinu í júlí.

Nú leitum við - nefndin - til ykkar og auglýsum eftir nafni á félagið. Endilega sendið inn tillögur ykkar. Þið getið til að mynda sent þau inn sem svör við þessarri grein, til mín í skilaboðum, eða til mín í gegnum tölvupóst (vargur@vargur.net).

Enn fremur langar mig vinsamlegast að biðja lesendur að senda ekki önnur svör á þessa grein en nafnatillögur. Vangaveltur um spilafélagið almennt bið ég ykkur að senda sem svör á fyrri grein mína “Spilafélag. Staðan, stefnan”.

Með von um góð viðbrögð,
Vargu
(\_/)