Formleg kvörtun vegna stjórnunar á /sorp, eða skorts á stjórnun.


Grein þessi er send inn sem hluti af hóp kvartanna vegna slæmrar stjórnunar á áhugamáli þessu. THT, Lobsterman og
Batguy eru til dæmis alltof vanvirkir á áhugamálinu og finnst mér virkilega vanta nýtt
blóð þar inn í staðinn.


Að Lily2, /sorp á að vera staður til þess að tjá sig um allan andskotann, allt og ekki neitt,
/sorpið á ekki að þurfa að þroskast og tala fágaðara máli og byggja upp réttar setningar, /sorp á ekki að vera staður
til þess að ræða fréttir og stjórnmál, heldur internet meme's og eitthvað algjörlega úr öllu
samhengi við alheiminn.


Þræðir sem þessi:
http://www.hugi.is/sorp/threads.php?page=view&contentId=7190298


Af hverju þarf að læsa þessu og mörgum þráðum sem svipar til þessa þráðar. Þetta er lítið annað en vitleysa.
Á tímapunkti var svo mörgum þráðum læst að fólk með alvöru topics og alvöru spurningar þurfti að
segja eitthvað rugl til að bæta orðum við þráðinn til að fá honum ekki læst.


Þetta “læsiskrímsli” er algjört rugl og /sorp er ekki /tilveran, /sorp ætti að vera óbeislað og hreint frá allri
ritskoðun nema þegar ritskoðun er algjörlega þörf og ekki hægt er að komast hjá henni.


Einnig vil ég minnast á þetta púsluspil á forsíðu /sorp, hvur andskotinn er málið með það!?


Mér finnst að það þyrfti að hreinsa út og hleypa nýju blóði inn í /sorp svo /sorp verði aftur /sorp, staður sem maður
getur tjáð sig um allann andskotann, hvíta ketti, Billy Mays, kókómjólk og steingrýlur, en ekki að öllu verði læst
á staðnum sem uppfyllir ekki kröfur Lily2

Til þess að /sorp verði aftur eins og það á að vera, /sorp í sínu hreinasta formi, er þörf á algjörri gegnumtekt.

/sorp á að vera frumsamið.