Er ég einn um að eiga það til að ramba þangað inn, ætla að segja eitthvað og átta mig svo á því að það væri bara þursaskapur og neyðast til að drífa mig þaðan áður en ég geri eitthvað sem ég gæti misst stjórnandastöðuna yfir?

Svo datt mér líka í hug að reyna að koma einhverju í gang til að hrista smá uppí þessu áhugamáli. Sjálfur er ég að gæla við þá hugmynd að hafa greinakeppni með vissum þema en allar uppástungur eru auðvitað velkomnar ^^

P.S. Ekki trolla rómantík þótt ég sé að tala um að trolla rómantík. Þótt ég sé pretty cool guy þá eru ekki allar hugmyndir sem ég fæ góðar. Er með allavega tvö ör sem sanna það…
Þetta var awesome