Iss… þetta er ekkert!
Ég var í útilegu með 9-12 ára börn á helginni…
Og við fórum með þeim í snjó, upp á móti (bakaleiðin var að sjálfsögðu niður í móti) svona einn kílómeter.
Allaveganna, þá sögðum við þeim frá Uglu/Sigrúnu fjallaskjaldböku sem ætti heima í vatni við fjallið sem skátaskálinn er (virkjun, lónið við hana. Þetta er saga sem er búið að segja í mörg ár).
Og allt í lagi, við förum upp en vildum ekki fara of nálægt þannig að vinkona mín benti á eitthvað stýri sem stóð upp úr snjónum og sagði:
“Krakkar! Þetta er fóturinn á skjaldbökunni!”
Og krakkarnir horfðu á okkur með svip sem sagði “við erum ekki fimm ára þroskaheftir einstaklingar!”