Eurovision Getraun 2
7. febrúar – 21. febrúar 2007

Hámarksfjöldi stiga sem hægt er að fá úr triviunni eru 20 stig.

1.
Hvaða tvö íslensku framlög til Söngvakeppninnar hafa verið samin af Valgeiri Guðjónssyni (fyrrum Stuðmanni)? (2 stig)

Svar: Hægt og hljótt og Það sem enginn sér

2.
Hve oft hefur Noregur sigrað Söngvakeppnina og hvaða ár? (2 stig)

Svar: 2var, 1985 og 1995

3.
Hvaða land tók þátt í sinni einu keppni árið 1980, og á hvaða tungumáli var lagið? (2 stig)

Svar: Marokkó, arabíska

4.
Var haldin forkeppni á Íslandi árið 1995, já eða nei? (1 stig)

Svar: nei

5.
“Cente di Mare” með Umberto Tozzi og Raf er orðið heimsfrægt sem ástarlag, og m.a. hér á Íslandi. En færri vita þó að þetta lag tók eitt sinn þátt í Söngvakeppninni. Hvaða land tefldi fram þessu lagi og hvaða ár? (2 stig)

Svar: Ítalía 1987

6.
Hvaða heimsþekkta bandaríska leikkona flutti breska framlagið árið 1974, og hvað hét lagið? (2 stig)

Svar: Olavia Newton-John – Long live love

7.
Hvaða þingmaður hefur kynnt íslensku forkeppnina og hvaða ár? (3 stig)

Svar: Kolbrún Halldórsdóttir 1987

8.
Hvað er lágmarksaldur fyrir þátttöku í Söngvakeppninni? (1 stig)

Svar: 16 ára

9.
Hverjir fluttu breska framlagið árið 1997 (sem sigraði söngvakeppnina), og hvaða heimfræga sumarsmell áttu þessir flytjendur árið 1985? (3 stig)

Svar: Katharina & The Waves – Walking on Sunshine

10.
Hvaða land hefur núna keppt lengst í Söngvakeppninni án þess að hafa sigrað? (2 stig)

Svar: Portúgal

———-

Úrslit spurningakeppni 2:


Loevly - 9 stig
Glamrocker - 15 stig
Grettir - 7,5 stig
Stjarna4 - 2 stig

Staðan að loknum 2 spurningakeppnum:

1. Glamrocker - 22,67 stig
2. Loevly - 9 stig
3. Grettir - 7,5 stig
4. Stjarna4 - 2 stig

———-

Ég mun, a.m.k. í bili, ekki treysta mér til að sjá um fleiri spurningakeppnir vegna mikilla veikinda. Með von um að einhver taki að sér gerð spurningakeppni 3 og vonandi fleiri,

m.kv.

Ultravox