Skil á einkunum
Samkvæmt viðmiðunartíma í reglugerð um samræmd próf skal Námsmatasstofnun skila einkunum 24 dögum eftir síðasta próf. Í ár fellur þessi dagsetning á sunnudag 1. júní. Undanfarin ár hefur tekist að skila einkunum nokkrum dögum fyrir viðmiðunardag reglugerðar og vonast starfsmenn prófadeildar eftir að það takist einnig þetta árið. Það kemur hinsvegar ekki í ljós fyrr en nær dregur hvort svo verður.