Hæ. Ég lenti í smá vandræðum með Neighbours þáttinn í gær. Ég tók hann upp í hádeginu og ætlaði að horfa á hann um kvöldið en þá sá ég að það voru svo margar truflanir að það var varla hægt að horfa á þáttinn, spólan er örugglega biluð bara. En því miður voru allar endursýningarnar búnar líka þannig ég ætlaði að horfa á hann á netinu, en ég bara finn hann hvergi! Ég veit ég get horft á hann á laugardaginn eða sunnudaginn, en þá get ég ekki horft á hina þættina í vikunni fyrr en þá líka. Veit einhver um síðu þar sem ég get horft á þennan þátt, nr.5918??? (Fyrsti þáttur Natöshu Williams).