Já, hvað segiði svo hana Teri? Eða það er að segja Annie? ;) Ok vissi alveg að hún væri Annie og hún væri ekkert dáin og allt það, en er samt búin að bíða eftir því að sjá þetta geðveikt lengi! Vona að þau komist að þessu fljótlega líka, en það er allt svo langdregið þarna… Fyndið hvða þau geta alltaf búið e-ð til í þessum sápum.. hún á hafa hafa farið í lýtaaðgerð til að líkjast raunverulegu Teri DeMarco og röddin hennar er öðruvísi því það eyðilagði raddböndin e-ð og svo lenti raunverulega Teri í “slysi” og Annie stal líki úr líkhúsinu og tók hár af sjálfri sér svo allir myndu trúa því að hún væri dáin! Það sem maður gerir ekki til að feika dauða sinn!! En það fyndnasta er að lyfið virkaði einu sinni ekki fyrst allavega, Josh vildi ekki trúa því að hann elskaði ekki Revu, en samt var hann skrýtinn í dag…
En hvernig finnst ykkur að Annie sé komin aftur sem Teri DeMarco? Hún virtist vera svo almennileg (Teri) og svo bara búmm! Algjör klikkhaus…

Svo er það Dinah. Ég er ekki bara búin að fá nóg af henni því hún er svo leiðinleg, heldur er hún bara geðveik. Í alvöru, hver með fullu viti fer og kveikir í húsi þar sem maður er, vitandi að maður getur varla labbað?? Bara til að láta Hart fá sektarkennd fyrir að fara til Cassie! Nú er hann sko sannarlega með sektarkennd… Fyrst var hún næstum búin að drepa sig með pillunum og svo núna með því að kveikja í… og svo var þetta the Jessup Fram, hemili Harts! Konan er ekkert að hugsa… Hlakka til þegar Dinah fer!

Bætt við 15. desember 2009 - 19:09
Jessum Farm á þetta auðvitað þð vera ;)