Ok, endirinn áðan var hrikalegur! Þetta var ennþá hrikalega fyrir Ástrala (og mig;)) því eftir þennan þátt var enginn þáttur í mánuð svo allir voru að klikkast! Þetta endar alltaf á e-u svona drama, og tókuð þið eftir því að flestir þeirra lentu í svipuðu í fyrra þegar þakið féll í partýinu? Allavega, í fyrsta lagi skil ég ekki Kyle og Justin, reyndar ekki Zeke heldur akkúrat núna! Þvílíkt var þetta úthugsað hjá þeim, eða þannig. Nú eru Libby, Zeke og Didge týnd. Ætli þau finnist öll?? Greyið Declan ef e-ð kemur fyrir Didge eða barnið og Libby og Zeke. Sérstaklega Zeke þar sem síðasta samtalið hans við Rachel áður en þau fóru í ferðina var ekki gott, og ekki heldur Susan og Karls reyndar neitt sérstaklega. Við sjáum bara hvað gerist!! Btw, þetta var síðasti þátturinn sem Michala Banas er í, svo á morgun kemur Kym Valentine aftur sem Libby :) Haha skemmtilegur, 1.dagurinn sem hún kemur aftur :D

Og svo síðast, hvað finnst ykkur um Simon og Tegan svona við fyrstu sýn? Eru þau lík Donnu, svona furðuleg en samt skemmtileg eða bara leiðinleg? ;)