Góðan daginn.

Festist í því núna um daginn að leita af þætti sem var einu sinni sýndur á POPTV en það er ómögulegt að finna nafnið á honum eða yfirhöfuð bara eitthvað um hann á netinu.

Vantar þessvegna hjálp frá hugurum við að hafa upp á nafninu.

Þátturinn lýsir sér þannig að hann fjallaði um hóp af fólki sem að vann við það að vera leiðbeinendur á Ibiza, og sýndi hann aðalega bara frá djammi og lífí aðalpersóna í svefnherberginu. Voru settir upp til þess að vera svolítið raunveruleikaþáttalegir (er þetta orð?), en voru samt leiknir.

Ef einhver man eftir nafniu á þættinum væri það vel þegið.
takk fyrirfram
Shit ég graut blasið!